Meirihluti fyrir að ákæra Støjberg fyrir Ríkisrétt Atli Ísleifsson skrifar 14. janúar 2021 09:44 Inger Støjberg var ráðherra innflytjendamála í Danmörku á árinum 2015 til 2019. Getty/ Francis Dean/Corbis Ljóst má vera að Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála í Danmörku, verður ákærð og látin svara til saka fyrir Ríkisrétt (d. rigsrett) þar í landi.
Mette Frederiksen, forsætisráðherra landsins, segir frá því í tilkynningu að þingflokkur Jafnaðarmanna myndi greiða atkvæði með slíkri tillögu á þingi. Rannsóknarnefnd þingsins tilkynnti í síðasta mánuði að Støjberg hafi í ráðherratíð sinni, árið 2016, gefið út ólögleg tilmæli um að láta aðskilja gifta hælisleitendur sem væru yngri en átján ára við komuna til Danmerkur. Náði ákvörðunin til 23 para. Ákvörðun þingflokks Jafnaðarmanna þýðir að meirihluti sé á þinginu fyrir því að gefa út ákæru.„Rauða blokkin“ á þinginu hyggst greiða atkvæði með, en í „bláu blokkinni“ hefur verið greint frá því að þingflokkur Frjálslynda bandalagsins og Íhaldsflokksins muni einnig greiða atkvæði með. Þingflokkur Venstre, flokks Støjberg, hefur ekki lýst yfir afstöðu í málinu, en formaðurinn Jakob Elleman-Jensen hefur sagst ætla að greiða atkvæði með. Þingflokkur Nye Borgerlige og Danska þjóðarflokksins mun greiða atkvæði gegn tillögunni. Ríkisréttur Danmerkur líkist að miklu leyti Landsdómi á Íslandi. Ríkisréttur Danmerkur er skipaður þrjátíu mönnum – fimmtán dómurum Hæstaréttar og fimmtán einstaklingum sem kosnir eru af þjóðþinginu. Inger Støjberg lét á dögunum af varaformennsku í Venstre eftir deilur við Jakob Ellemann-Jensen formann.
Danmörk Tengdar fréttir Segir skilið við flokkinn og gerist óháður þingmaður Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur og formaður Venstre, stærsta hægriflokks landsins, hefur ákveðið að skrá sig úr flokknum. Rasmussen situr enn á þingi og verður því að óbreyttu óháður þingmaður út kjörtímabilið. 2. janúar 2021 07:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Segir skilið við flokkinn og gerist óháður þingmaður Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur og formaður Venstre, stærsta hægriflokks landsins, hefur ákveðið að skrá sig úr flokknum. Rasmussen situr enn á þingi og verður því að óbreyttu óháður þingmaður út kjörtímabilið. 2. janúar 2021 07:57