Fimm íslensk gull í Liechtenstein

Íslenski hópurinn í Liechtenstein.
Íslenski hópurinn í Liechtenstein. Ljósmynd/Karatesamband Íslands

Landslið Íslands í karate tók þátt á áttunda Smáþjóðamótinu i karate sem haldið var í Liechtenstein um helgina. Íslensku keppendurnir náðu í fimm gull, tvö silfur og sex brons á mótinu.

Þórður Jökull Henrysson og Ísold Klara Felixdóttir unnu tvö gull hvort og Una Borg Garðarsdóttir vann einnig gull í sínum flokki. Þórður sigraði fullorðinsflokki og U21 flokki. Ísold vann kumite bæði í -68 kg og -61 kg. Una sigraði í Cadet-flokki í kata.

Auk þeirra unnu Móey María Sigþórsdóttur McClure silfur í U21 árs flokki í kata og Samuel Josh Ramos silfur í fullorðinsflokki í kumite í -67 kg og brons í kumite U21 flokki -67 kg.

Aðrir verðlaunahafar voru þau Eydís Magnea Friðriksdóttir með tvö brons í kata, Adam Ómar Ómarsson brons í kata, Davíð Steinn Einarsson brons í kumite og Daði Logason brons í kumite.

Um 220 keppendur frá átta af níu smáþjóðum Evrópu tóku þátt í mótinu. Næsta Smáþjóðamót verður síðan haldið að ári í Lúxemborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert