Unnu tvo síðustu Íslandsmeistaratitla sína í Hafnarfirði og geta nú endurtekið leikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2021 12:01 Valsmenn mæta til leiks með þriggja marka forskot frá því í fyrri leiknum við Hauka. Vísir/Elín Björg Úrslitin í Olís deild karla í handbolta ráðast á Ásvöllum í kvöld og það ætti að færa Valsmönnum góðar minningar að geta orðið meistarar í Hafnarfirði. Valsmenn mæta með þriggja marka forskot í farteskinu í kvöld þegar seinni úrslitaleikur Hauka og Vals fer fram á Ásvöllum. Þeir mega því tapa með tveimur mörkum en yrðu samt Íslandsmeistarar. Valsmenn unnu titilinn síðast 2017 og þetta yrði þá þriðja Íslandsmeistaratitill félagsins í handbolta karla á þessari öld. Þessir tveir Íslandsmeistaratitlar Valsmanna á öldinni eiga tvennt sameiginlegt þótt annar hafi unnist í deildarkeppni en hinn í úrslitakeppni. Valsmenn urðu síðast Íslandsmeistarar 21. maí 2017 eftir sjö marka sigur á FH í oddaleik í Kaplakrika í Hafnarfirði. Valsmenn unnu þá alla útileiki sína í úrslitaeinvíginu. Það var fyrsti Íslandsmeistaratitil Valsliðsins í tíu ár eða síðan að þeir unnu hann vorið 2007. Valsmenn tryggðu sér þá titilinn í lokaumferðinni 22. apríl 2007 og fór lokaleikur Valsmanna einmitt fram í Hafnarfriði.Valsmenn unnu þá tveggja marka sigur á Haukum á Ásvöllum, 33-31, og það tryggði þeim eins stigs forskot á HK-liðið. Valur hefur því unnið tvo síðustu Íslandsmeistaratitla sína í Hafnarfirði og geta nú endurtekið leikinn í kvöld Óskar Bjarni Óskarsson hefur líka komið að báðum þessum titlum. Hann var þjálfari liðsins 2007 og þjálfaði liðið með Guðlaugi Arnarssyni 2017. Nú er Óskar Bjarni aðstoðarþjálfari hjá Snorra Stein Guðjónssyni. Það er reyndar hægt að fara enn lengra aftur því þegar Valsmenn unnu 2007 þá voru þeir búnir að bíða í níu ár eftir Íslandsmeistaratitlinum. Valsliðið vann þá Fram í úrslitaeinvíginu 1998 og Jón Kristjánsson var þá spilandi þjálfari en á bekknum var hann með Óskar Bjarna sem aðstoðarmann sinn. Sá titill kom hins vegar í hús með sigri í fjórða leiknum á Hlíðarenda. Leikur Hauka og Vals hefst klukkan 19.30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Seinni bylgjan byrjar upphitun klukkan 18.45 og mun síðan gera upp leikinn og alla úrslitakeppnina eftir hann. Allt á Stöð 2 Sport. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla Valur Haukar Mest lesið Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ Körfubolti Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Enski boltinn „Höfum vaxið með hverjum leik“ Fótbolti „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Fótbolti Dortmund í úrslit eftir sigur í París Fótbolti Fleiri fréttir Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Sjá meira
Valsmenn mæta með þriggja marka forskot í farteskinu í kvöld þegar seinni úrslitaleikur Hauka og Vals fer fram á Ásvöllum. Þeir mega því tapa með tveimur mörkum en yrðu samt Íslandsmeistarar. Valsmenn unnu titilinn síðast 2017 og þetta yrði þá þriðja Íslandsmeistaratitill félagsins í handbolta karla á þessari öld. Þessir tveir Íslandsmeistaratitlar Valsmanna á öldinni eiga tvennt sameiginlegt þótt annar hafi unnist í deildarkeppni en hinn í úrslitakeppni. Valsmenn urðu síðast Íslandsmeistarar 21. maí 2017 eftir sjö marka sigur á FH í oddaleik í Kaplakrika í Hafnarfirði. Valsmenn unnu þá alla útileiki sína í úrslitaeinvíginu. Það var fyrsti Íslandsmeistaratitil Valsliðsins í tíu ár eða síðan að þeir unnu hann vorið 2007. Valsmenn tryggðu sér þá titilinn í lokaumferðinni 22. apríl 2007 og fór lokaleikur Valsmanna einmitt fram í Hafnarfriði.Valsmenn unnu þá tveggja marka sigur á Haukum á Ásvöllum, 33-31, og það tryggði þeim eins stigs forskot á HK-liðið. Valur hefur því unnið tvo síðustu Íslandsmeistaratitla sína í Hafnarfirði og geta nú endurtekið leikinn í kvöld Óskar Bjarni Óskarsson hefur líka komið að báðum þessum titlum. Hann var þjálfari liðsins 2007 og þjálfaði liðið með Guðlaugi Arnarssyni 2017. Nú er Óskar Bjarni aðstoðarþjálfari hjá Snorra Stein Guðjónssyni. Það er reyndar hægt að fara enn lengra aftur því þegar Valsmenn unnu 2007 þá voru þeir búnir að bíða í níu ár eftir Íslandsmeistaratitlinum. Valsliðið vann þá Fram í úrslitaeinvíginu 1998 og Jón Kristjánsson var þá spilandi þjálfari en á bekknum var hann með Óskar Bjarna sem aðstoðarmann sinn. Sá titill kom hins vegar í hús með sigri í fjórða leiknum á Hlíðarenda. Leikur Hauka og Vals hefst klukkan 19.30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Seinni bylgjan byrjar upphitun klukkan 18.45 og mun síðan gera upp leikinn og alla úrslitakeppnina eftir hann. Allt á Stöð 2 Sport. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla Valur Haukar Mest lesið Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ Körfubolti Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Enski boltinn „Höfum vaxið með hverjum leik“ Fótbolti „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Fótbolti Dortmund í úrslit eftir sigur í París Fótbolti Fleiri fréttir Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Sjá meira