Fleiri börn hafa smitast af kórónuveirunni Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 13. október 2020 17:44 Fleiri börn hafa nú smitast af kórónuveirunni en í fyrstu bylgju faraldursins. Grafík/Hafsteinn
Fleiri börn hafa greinst með kórónuveiruna það sem af er þriðju bylgju faraldursins en þeirri fyrstu. Þá hafa foreldrar hátt í fjögur hundruð leik- og grunnskólabarna í Reykjavík kosið að halda börnum sínum heima síðustu daga. Áttatíu og þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjörutíu og níu þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu. Þeim sem eru með veiruna heldur áfram að fjölga en í dag eru 1039 í einangrun. Þegar mest var í fyrstu bylgju farsóttarinnar í byrjun apríl voru 1096 í einangrun eða svipaður fjöldi og nú. Þá var enn mánuður í að samkomutakmörkunum yrði aflétt. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, ítrekar að börn smitist síður og smiti aðra síður. Vísir/Vilhelm Þær samkomutakmarkanir sem nú eru í gildi gilda fram á mánudag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ætlar að senda heilbrigðisráðherra nýtt minnisblað á fimmtudaginn þar sem fram kemur hvaða takmarkanir hann leggur til að gildi í næstu vikurnar. „Við þurfum að fara hægt í að aflétta og við erum enn þá með faraldurinn aðallega hér á höfuðborgarsvæðinu. Það gengur allt tiltölulega vel úti á landi og er rólegt þar. Þannig við erum fyrst og fremst að eiga við faraldurinn hér innan höfuðborgarsvæðisins. Þannig ég held að hertari reglur verði svona kannski eitthvað lengur við lýði hér,“ segir Þórólfur. Börn heima að ósk foreldra Hátt í níu hundruð leik- og grunnskóla börn í Reykjavík eru í sóttkví og um fjörutíu eru í einangrun. Í gær voru 287 grunnskólabörn í leyfi að ósk foreldra og 93 leikskólabörn. Sextíu starfsmenn skóla- og frístundasviðs voru í sóttkví að eigin ákvörðun. Fleiri börn hafa greinst með kórónuveiruna það sem af er þriðju bylgjunni en greindust með hana í fyrstu bylgjunni. Þannig greindust 126 börn með veiruna í fyrstu bylgjunni en börn voru þá um 7% þeirra sem smituðust. Nú hafa 160 börn greinst með veiruna og eru um 11% þeirra sem hafa greinst. Sóttvarnalæknir ítrekar það að börn smitist síður og smiti síður aðra. „Þetta er ekkert í stórum dráttum frábrugðið frá því sem var. Við þurfum líka að taka tillit til þess að við erum að taka miklu fleiri sýni núna frá börnum þannig við þurfum aðeins að sjá það í því ljósi. Þannig í stórum dráttum þá er þetta mjög svipað,“ segir Þórólfur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Barnasmitsjúkdómalæknir telur lokun skóla ekki nauðsynlega Valtýr Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalæknir, telur ólíklegt að lokun skóla myndi skila tilætluðum árangri í baráttunni gegn kórónuveirunni. 12. október 2020 21:37 Skólastarf á Covid-tímum í forgangi Skólastarf er í forgangi í samfélaginu að sögn Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra og er lagt mikið kapp á að halda skólastarfi úti eins öruggu og öflugu og kostur er. 12. október 2020 19:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Barnasmitsjúkdómalæknir telur lokun skóla ekki nauðsynlega Valtýr Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalæknir, telur ólíklegt að lokun skóla myndi skila tilætluðum árangri í baráttunni gegn kórónuveirunni. 12. október 2020 21:37
Skólastarf á Covid-tímum í forgangi Skólastarf er í forgangi í samfélaginu að sögn Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra og er lagt mikið kapp á að halda skólastarfi úti eins öruggu og öflugu og kostur er. 12. október 2020 19:57