Fær ekki vaskinn endurgreiddan vegna vinnu við upphækkun jeppa Atli Ísleifsson skrifar 11. október 2021 16:13 Nefndin telur því ekki vera forsendur til að skýra heimildina svo rúmt að hún taki til vinnu við slíkar breytingar á fólksbílum. Myndin er úr safni. Getty Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu manns um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við upphækkun jeppa og koma honum á stærri dekk. Ekki voru taldar forsendur til að skýra endurgreiðsluheimild virðisaukaskattslaga svo rúmt, að hún tæki til slíkra breytinga.
Kærandi reyndi að fá virðisaukaskattinn af vinnu fyrir breytingar á jeppanum endurgreiddan í nafni breytinga á virðisaukaskattslögum vegna faraldurs kórónuveirunnar sem fól í sér tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna á árinu 2021. Náðu breytingarnar meðal annars í sér til vinnu vegna bílaviðgerðar, bílamálningar eða bílaréttingar fólksbifreiða. Áður hafði embætti ríkisskattstjóra hafnað beiðninni og kærði maðurinn ákvörðunina til yfirskattanefndar og til að fá henni hnekkt. Sölureikningurinn var gefinn út í mars 2021 og nam alls 2.107.000 krónur, en þar af nam vinnuliðurinn 1.001.000 krónur. „Miðað við lýsingu á sölureikningnum var um að ræða vinnu „við 35“ breytingu, brettakanta, úrklippu, loftdælu og dráttarbeisli o.fl.“, eins og þar segir. Í beinu framhaldi af kaupum á nýjum jeppa Í umsögn ríkisskattstjóra í málinu er dregin sú ályktun að um hafi verið að ræða breytingar á jeppanum í beinu framhaldi af kaupum kæranda á honum nýjum, en kærandi hafi keypt bílinn í febrúar 2021 eða sama dag og hún var nýskráð miðað við upplýsingar í ökutækjaskrá. Ekki komu fram neinar athugasemdir af því tilefni af hálfu mannsins og tekur nefndin því undir það með ríkisskattstjóra að hafna beri beiðninni um endurgreiðslu. Sömuleiðis hafi orð nefndarálits efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis með frumvarpi til laganna mælt þessari túlkun mannsins. Nefndin telur því ekki vera forsendur til að skýra heimildina svo rúmt að hún taki til vinnu við slíkar breytingar á fólksbílum sem um ræðir í tilviki kæranda sem telja verður að miði fyrst og fremst að því að breyta notkunareiginleikum viðkomandi bíls með upphækkun hennar og stærri dekkjum. Kröfum hans hafi því verið hafnað.
Bílar Skattar og tollar Neytendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkingar Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun Stöð 2+ lækkar verð Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Mamman ítrekað læst úti en fær engar skaðabætur Flúðu dónalegan fararstjóra og fá ekki krónu Laumuðu fötunum með barnabílstólunum og fá lægri bætur Hótelið alls ekki sex hundruð metra frá ströndinni Athafnaleysi Katrínar geti skaðað hagsmuni landsmanna Sjá meira