Eini rófubóndi landsins sem ræktar rófufræ Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 14. október 2020 19:51 Fjóla Signý Hannesdóttir, rófubóndi á bænum Stóru Sandvík í Árborg en bærinn er í Sandvíkurhreppnum hina forna. Magnús Hlynur Hreiðarsson
Fjóla Signý Hannesdóttir á bænum Stóru Sandvík í Árborg er eini rófubóndi landsins, sem ræktar rófufræ, sem allir rófubændur treysta á að geta fengið fræ hjá. Hún náði um fimmtán tonnum upp af rófum úr görðum sínum í haust. Rófurnar hennar þykja einstaklega bragðgóðar. Fjóla Signý tók við af öldruðum föður sínum að rækta rófur og rófufræ í Stóru Sandvík. Uppskeran hjá henni var mjög góð í haust en hún tók upp um 15 tonn af rófum. Fræið, sem hún ræktar er Íslenska Sandvíkurrófufræið, sem þykir bragðbetra og harðgerðara en annað innflutt fræ. Rófurnar kallast Sandvíkurrófur og eru einstaklega harðgerðar og bragðgóðar „Við plöntum niður ákveðnum rófum, sem eru kallaðar frærófur. Svo spretta upp úr þeim stilkar, sem blómstra og svo lokast blómin. Þá verða til fræbelgir, sem heita Skálpar, inn í þessu eru fræin. Svo hengi ég það upp til þurrkunnar í allan vetur, eða fram í apríl. Þá fer ég með það í þreskingu á Korpu, þá þreskja þeir það fyrir mig, blása frá skálpana og þurrka fræið,“ segir Fjóla Signý. Fræin, sem Fjóla Signý ræktar eru fyrir alla rófubændur á Íslandi en það eru um 18 kíló á ári. Hér eru nokkur þeirra.Magnús Hlynur Hreiðarsson Fjóla Signý ræktar um 18 kíló af fræi á ári en passar það fyrir alla rófuuppskeru á Íslandi eða 900-1100 tonn. Hún segir mjög skemmtilegt að vera rófubóndi. „Íslendingar mættu kannski vera enn duglegir að borða rófur. Margir eru fastir á því að það þurfi alltaf að sjóða þær og setja bara í kjötsúpuna eða með slátrinu. Það er líka gott að borða þær hráar.“ Eins gaman og Fjólu þykir að vera rófubóndi þá þykir henni jafn leiðinlegt að geta hvergi fengið neina styrki frá hinu opinbera eins og hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins og Erfðanefnd landbúnaðarins, henni var neitað á báðum stöðum. „Já, það er í rauninni öll ábyrgðin á mér að rækta fræ til þess að íslenskir rófubændur geti keypt fræ, íslenskt fræ af því að allir bændurnir kaupa af mér. Þannig að öll rófuframleiðslan á Íslandi er pínu háð mér en samt er ég að gera þetta eiginlega í sjálfboðavinnu,“ segir Fjóla Signý. Rófurnar frá Fjólu Signý kallast Sandvíkurrófur og eru einstaklega harðgerðar og bragðgóðar.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Landbúnaður Garðyrkja Matvælaframleiðsla Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Sjá meira