Kröftug kvennastund í Hörpu í tilefni af Bleikum október Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 14. október 2021 17:01 Í tilefni af Bleikum október fer fram kröftug kvennastund í Hörpu. Kraftur Í tilefni af Bleikum október verður Kraftur með kröftuga kvennastund í Hörpu fimmtudaginn 21. október milli klukkan 17:00 og 19:30. „
Við fáum kraftmiklar konur til að deila reynslu sinni, hvert þær sækja sinn styrk og hvernig þær hafa tekist á við áskoranir hvort sem er í starfi eða persónulega lífinu. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari Krabbameinsfélagsins, setur Kvennastundina,“ segir í tilkynningu frá Krafti. Fram koma Lára Guðrún Jóhönnudóttir, G. Sigríður Ágústsdóttir, Anna Dröfn Sigurjónsdóttir og Eliza Reed. Með fundarstjórn fara Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir. Lára Guðrún Jóhönnudóttir er hvunndagshetja Bleiku slaufunnar 2021. Lára missti móður sína ung úr krabbameini og greindist svo síðar sjálf með brjóstakrabbamein. Hún hefur verið síðust ár öflugur talsmaður kvenna sem greinst hafa með brjóstakrabbamein og vakið athygli á þeim málefnum sem betur mega fara í þeim efnum. Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, hefur talað opinskátt um sína baráttu við brjóstakrabbamein undir #látumdælunaganga og á Facebook síðunni Föruneyti hringsins. Á síðasta ári greindist hún með meinvörp út frá brjóstakrabbameininu sem hún hefur verið að takast á við og hefur vakið athygli fyrir viðhorf sitt til lífsins og opinskáa umræðu um krabbamein og því sem því fylgir. Eliza Reid, forsetafrú og frumkvöðull, hefur tekið að sér ýmis verkefni bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur staðið frammi fyrir ýmsum áskorunum bæði í starfi og persónulega lífinu. Eliza hefur sjálf sagt að hún sé ekki skraut forsætisembættisins heldur kona með sína eigin rödd og eigin skoðanir sem vill gera samfélaginu gagn. G. Sigríður Ágústsdóttir, Sirrý snjódrífa, fékk þær fregnir fyrir sex árum síðan að hún væri með ólæknandi krabbamein. Til að takast á við veikindin fór hún að stunda útivist og göngur sér til sjálfseflingar. Hún setti á laggirnar verkefnið Lífskraft sem m.a. stóð að þverun Vatnajökuls og göngu 100 kvenna upp á Hvannadalshnjúk til styrktar Líf styrktarfélagi, Krafti og krabbameinsdeild Landspítalans. Í lokinn verður boðið upp á umræður þar sem konur geta borið fram fyrirspurnir fyrir þessar kröftugu konur sem halda erindi á kvennastundinni. Með fundarstjórn fara Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, baráttukonur í réttindabaráttu hinsegin fólks og hafa m.a. halda úti fræðslu á samfélagsmiðlum Hinsegin leikanna. Léttar bleikar veitingar verða í boði. „Þetta verður söguleg og mögnuð kvennastund. Ókeypis er á viðburðinn en takmarkað sætapláss er í boði og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti.“ Skráning fer fram hér.
Kvenheilsa Heilsa Harpa Tengdar fréttir Missti móður sína úr brjóstakrabbameini og greindist sjálf á sama aldri Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið hjá íslenskum konum og á hverju ári greinast að meðaltali 235 konur með brjóstakrabbamein. 14. október 2021 10:41 Litlir hnökrar verða að stórum snjóbolta Guðrún Sigríður Ágústsdóttir hefur safnað milljónum fyrir samtökin Kraft og Líf eftir að hún sigraðist sjálf tvisvar á krabbameini. Heilbrigðismálin eru henni hjartans mál og stefnir hún nú á þing. 19. júní 2021 07:01 Mest lesið Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Bíó og sjónvarp Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Lífið Gæsahúð og allur tilfinningaskalinn á forsýningu Mari Bíó og sjónvarp Disneydraumurinn varð loks að veruleika Lífið Maikai-hjónin eignuðust stúlku Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Lífið Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Lífið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Makamál Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Lífið Fleiri fréttir Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Baldurs og Felix-fáni falur Menningarunnendur nutu veðurblíðunnar í miðborginni Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Allt það besta úr þáttaröðinni Öll þessi ár Fyrstu kaupendur hafi þessi atriði í huga Rikki G svaraði kallinu og lét draum Ólafs Jóhanns rætast Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Ósáttir karlar flautuðu á Fríðu Dulin blessun að missa Baðhúsið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Vandamálaráðuneytið únefndi hinn fimmtán ára Viðar til sigurs Sjá meira
Missti móður sína úr brjóstakrabbameini og greindist sjálf á sama aldri Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið hjá íslenskum konum og á hverju ári greinast að meðaltali 235 konur með brjóstakrabbamein. 14. október 2021 10:41
Litlir hnökrar verða að stórum snjóbolta Guðrún Sigríður Ágústsdóttir hefur safnað milljónum fyrir samtökin Kraft og Líf eftir að hún sigraðist sjálf tvisvar á krabbameini. Heilbrigðismálin eru henni hjartans mál og stefnir hún nú á þing. 19. júní 2021 07:01