Miðasalan hafin fyrir EM

Stuðningsmenn Íslands fjölmenntu á HM í Svíþjóð í janúar.
Stuðningsmenn Íslands fjölmenntu á HM í Svíþjóð í janúar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Miðasalan fyrir EM karla í handbolta í Þýskalandi hófst í dag, en mótið fer fram í upphafi næsta árs.

Íslenska leikur í München og er í sterkum riðli með Serbíu, Svartfjallalandi og Ungverjalandi. Ísland leikur leikina í riðlinum 12., 14. og 16. janúar.

Handknattleikssamband Íslands gaf út leiðbeiningar handa stuðningsfólki í dag, en öll miðasala fer í gegnum mótshaldara, án aðkomu HSÍ.

Leikja­dag­skrá Íslands á EM í Þýskalandi:
12. janú­ar: Ísland – Serbía
14. janú­ar: Ísland – Svart­fjalla­land
16. janú­ar: Ísland – Ung­verja­land

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert