Verðlauna framúrskarandi ungan Íslending

Frá fyrri verðlaunaafhendingu framúrskarandi ungra Íslendinga.
Frá fyrri verðlaunaafhendingu framúrskarandi ungra Íslendinga. Ljósmynd/Gunnar Þór Sigurjónsson

Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar verða veitt af JCI á Íslandi í 20. skiptið á miðvikudag.

Fram kemur í tilkynningu frá JCI að í ár hafi borist hátt í þrjú hundruð tilnefningar frá almenningi. Sér­stök dóm­nefnd fer yfir til­nefn­ing­arnar og vel­ur úr tíu einstaklinga sem fá viðurkenningu, þeirra á meðal einn verðlauna­hafa.

Rík af ungu og öflugu fólki

Dómnefndina skipuðu: Elísabet Brynjarsdóttir Framúrskarandi ungur Íslendingur 2020 og fyrrum framkvæmdastjóri Frú Ragnheiðar, Eyvindur Elí Albertsson verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og senator JCI, Guðjón Már Guðjónsson framkvæmdastjóri OZ, Ragnhildur Helgadóttir rektor Háskólans í Reykjavík og Ríkey Jóna Eiríksdóttir landsforseti JCI 2021.

„Íslenska þjóðin er rík af ungu og öflugu fólki sem starfar af eldmóð og heilindum, eru að gera hreint út sagt framúrskarandi hluti og skapa jákvæð áhrif í samfélaginu. Okkur finnst mikilvægt að vekja athygli á því og vonumst til þess að viðurkenningin sé þeim hvatning,“ er haft eftir Guðlaugu Birnu, verkefnastjóra verðlaunanna, í tilkynningu.  

„Það var ekki einfalt verk fyrir dómnefndina að velja úr öllum þeim fjölda tilnefninga sem bárust en þau stóðu sig vel og JCI er stolt af þessum hóp sem við veitum viðurkenningu í ár.“

Eftirfarandi Íslendingar hljóta viðurkenningu í ár, en einn þeirra verður síðan verðlaunaður sem Framúrskarandi ungur Íslendingur 2021:

  • Björt Sigfinnsdóttir, fyrir störf/afrek á sviði menningar
  • Chanel Björk Sturludóttir, fyrir framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
  • Eyþór Máni Steinarsson, fyrir störf á sviði viðskipta, frumkvöðla og/eða hagfræði
  • Hanna Ragnarsdóttir, fyrir störf á sviði tækni og vísinda
  • Heiðrún Birna Rúnarsdóttir, fyrir störf á sviði siðferðis- og/eða umhverfismála
  • Isabel Alejandra Diaz, fyrir leiðtogastarf/afrek á sviði menntamála
  • Sindri Geir Óskarsson, fyrir störf á sviði mannúðar eða sjálfboðaliðamála
  • Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir, fyrir störf á sviði mannúðar eða sjálfboðaliðamála
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir, fyrir framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
  • Þórunn Eva G. Pálsdóttir, fyrir framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert