Innlent

50 greindust með Covid-19 innanlands

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Beðið eftir sýnatöku.
Beðið eftir sýnatöku. Vísir/Arnar

50 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 448 eru í einangrun og 1.632 í sóttkví.

24 greindu voru fullbólusettir en 26 óbólusettir. Þá voru 26 í sóttkví en 24 utan sóttkvíar.

Fjórir liggja á Landspítala vegna Covid-19, þar af einn á gjörgæsludeild.

Fjórir greindust með virkt smit í fyrri skimun á landamærunum og einn í seinni skimun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×