Kolbeinn leikmaður umferðarinnar

Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kolbeinn Sigþórsson, sóknarmaður Gautaborgar og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur verið útnefndur leikmaður umferðarinnar í sænsku úrvalsdeildinni af sjónvarpsstöðinni Discovery+.

Kolbeinn lék mjög vel þegar Gautaborg sigraði Mjällby 3:2 á sunnudaginn. Hann skoraði fyrsta mark liðsins og lagði upp hin tvö. Gautaborg komst upp í sjöunda sæti deildarinnar með sigrinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert