Ráðgjafi forsetans hvatti íbúa til að rísa upp gegn sóttvörnum Samúel Karl Ólason skrifar 16. nóvember 2020 19:49 Gretchen Whitmer, ríkisstjóri Michigan. AP/Embætti ríkisstjóra Michigan
Gretchen Whitmer, ríkisstjóri Michigan, segir henni hafa brugðið þegar hún sá að einn helsti sóttvarnaráðgjafi Donald Trumps, forseta, hefði kallað eftir því að íbúar ríkis hennar risu upp gegn sóttvarnaraðgerðum yfirvalda. Rétt rúmur mánuður er síðan hópur hægri sinnaða öfgamanna var handtekinn í ríkinu fyrir að ætla að ræna Whitmer og myrða hana. Ráðgjafinn, Scott Atlas, sagðist þó ekki vera að hvetja til ofbeldis. Hann birti fyrsta ákall sitt í gær. Það sneri að hertum sóttvarnaaðgerðum í Michigan þar sem smituðum hefur farið hratt fjölgandi að undanförnu. „Eina leiðin til að stoppa þetta er að fólk rísi upp gegn þessu. Þú færð það sem þú samþykkir,“ skrifaði Atlast og bætti við myllumerkjunum #FrelsiðSkiptirMáli og #StígðuUpp. The only way this stops is if people rise up. You get what you accept. #FreedomMatters #StepUp https://t.co/8QKBszgKTM— Scott W. Atlas (@ScottWAtlas) November 15, 2020 Seinna meir bætti Atlas svo við að hann hefði ekki verið að hvetja til ofbeldis. Það myndi hann aldrei gera. Þess í stað væri hann að vísa til atkvæðaréttar og friðsamra mótmæla. Atlas, sem er læknir og taugasérfræðingur, hefur enga reynslu af sóttvörnum og vann sér inn traust Trumps með því að kalla eftir því að sóttvarnaraðgerðir verði felldar niður og með því að tala niður hættuna af Covid-19. Hinar hertu sóttvarnaaðgerðir sem Atlas var að mótmæla snúa meðal annars að því að loka veitingahúsum og krám, spilavítum, líkamsræktarstöðvum, kvikmyndahúsum og annars konar innanhússtarfsemi næstu þrjár vikurnar. Í sjónvarpsviðtali í dag sagði Whitmer það hafa verið sláandi að sjá ummæli Atlas. Hún sagðist meðvituð um að starfsmenn Hvíta hússins notuðu hana ítrekað í pólitískum tilgangi en hún myndi þó ekki láta þvinga sig til að hætta að fara eftir tilmælum sérfræðinga. Hún hlustaði á fólk sem hefði virkilega kynnt sér sóttvarnir og væri virt í þeim heimi. Ekki aðila sem færu eingöngu eftir skipunum forsetans. Sjá einnig: Trump segir Fauci og aðra sérfræðinga vera fífl Trump hefur iðulega gagnrýnt Whitmer harðlega vegna þeirra sóttvarna sem hún hefur gripið til í Michigan og kallað eftir því að ríkið verði „frelsað“. Whitmer hefur kennt ummælum Trump um að öfgamenn hafi gert hana að skotmarki.
Bandaríkin Donald Trump Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir „Hann var bara að skemmta sér“ Lara Trump, tengdóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta, segir hann bara hafa verið að gantast á kosningafundi í gær, þar sem hann virtist styðja það að handtaka ætti Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Rúm vika er síðan Alríkislögregla Bandaríkjanna opinberaði að ráðabrugg hægri öfgamanna um að ræna Whitmer, rétta yfir henni fyrir landráð og myrða hana. 18. október 2020 18:12 Gagnrýndi yfirmann sóttvarnastofnunar fyrir ummæli um grímur og bóluefni Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt yfirmann Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) eftir að sá sagði að bóluefni við Covid-19 yrði ekki komið í almenna notkun fyrr en um mitt næsta ár og að grímur gætu verið skilvirkari en bóluefni. 17. september 2020 06:52 Sagði að Covid myndi hverfa vegna „hjarðeðlis“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, svaraði spurningum á sjónvörpuðum borgarafundi í gærkvöldi þar sem hann sagðist meðal annars ekki hafa gert lítið úr heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. 16. september 2020 07:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira
„Hann var bara að skemmta sér“ Lara Trump, tengdóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta, segir hann bara hafa verið að gantast á kosningafundi í gær, þar sem hann virtist styðja það að handtaka ætti Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Rúm vika er síðan Alríkislögregla Bandaríkjanna opinberaði að ráðabrugg hægri öfgamanna um að ræna Whitmer, rétta yfir henni fyrir landráð og myrða hana. 18. október 2020 18:12
Gagnrýndi yfirmann sóttvarnastofnunar fyrir ummæli um grímur og bóluefni Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt yfirmann Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) eftir að sá sagði að bóluefni við Covid-19 yrði ekki komið í almenna notkun fyrr en um mitt næsta ár og að grímur gætu verið skilvirkari en bóluefni. 17. september 2020 06:52
Sagði að Covid myndi hverfa vegna „hjarðeðlis“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, svaraði spurningum á sjónvörpuðum borgarafundi í gærkvöldi þar sem hann sagðist meðal annars ekki hafa gert lítið úr heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. 16. september 2020 07:14