fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
433Sport

Ummæli Milos vekja athygli – Segist hafa gefið flestum í Víking fyrsta tækifærið

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. júlí 2022 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensk lið verða í eldlínunni í Evrópumótum félagsliða karla í vikunni. Íslands- og bikarmeistarar Víkings ríða á vaðið í kvöld þegar þeir mæta sænska stórliðinu Malmö ytra í forkeppni Meistaradeildarinnar, en seinni leikuriinn fer svo fram á Víkingsvelli viku síðar. Víkingar hafa þegar farið í gegnum eina umferð forkeppninnar þar sem þeir unnu sigra gegn Levadia Tallinn og Inter Escaldes.

Þjálfari Malmö er Milos Milojević sem áður var leikmaður og þjálfari Víkings. VIðtal við hann á heimasíðu Malmö hefur vakið nokkra athygli.

„Ég hef þjálfað marga af þeim leikmönnum sem eru í liðinu í dag. Flestir af þeim fengu tækifæri undir minni stjórn, ég þekki því félagið og alla leikmennina,“ segir Milos.

Kristján Óli Sigurðsson vakti fyrst athygli á þessu í Þungavigtinni.

Þegar gögnin eru skoðuð kemur í ljós að aðeins tveir leikmenn í hópi Víkings fengu tækifæri undir stjórn Milos en það eru Viktor Örlygur Andrason og Erlingur Agnarson.

Það voru svo Halldór Smári Sigurðsson og Davíð Örn Atlason sem léku einnig undir stjórn Milos.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Lengjudeildin: Fjölnir vann opnunarleikinn gegn Grindvíkingum

Lengjudeildin: Fjölnir vann opnunarleikinn gegn Grindvíkingum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Meistaradeildin: Dortmund hafði betur gegn PSG

Meistaradeildin: Dortmund hafði betur gegn PSG
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Segist hafa valið Arsenal frekar en Manchester City – ,,Meira spennandi“

Segist hafa valið Arsenal frekar en Manchester City – ,,Meira spennandi“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ekki ósnertanlegur í sumar þrátt fyrir eigin ummæli – Verður launahæstur næsta vetur

Ekki ósnertanlegur í sumar þrátt fyrir eigin ummæli – Verður launahæstur næsta vetur
433Sport
Í gær

Pabbi leikmannsins ekki hrifinn af stöðunni í London – ,,Snýst um peninga“

Pabbi leikmannsins ekki hrifinn af stöðunni í London – ,,Snýst um peninga“
433Sport
Í gær

Sá síðasti sem þú bjóst við í þessu hlutverki: Er óvænt aðdáandi og ákvað að slá til – Sjáðu myndbandið sem gladdi marga

Sá síðasti sem þú bjóst við í þessu hlutverki: Er óvænt aðdáandi og ákvað að slá til – Sjáðu myndbandið sem gladdi marga