Innlent

Ástþór sann­færður um að verða sjöundi for­setinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ástþór skilar meðmælum sínum til Kristínar Edwald formanns landskjörstjórnar í Hörpu í morgun.
Ástþór skilar meðmælum sínum til Kristínar Edwald formanns landskjörstjórnar í Hörpu í morgun. RAX

Ástþór Magnússon var í skýjunum með að fá númerið sjö þegar hann mætti til Hörpu í morgun að skila meðmælalistum framboðs síns. Verið væri að kjósa sjöunda forsetann og hann væri sannfærður um að ná kjöri.

Hægt er að tala um Ástþór sem fastagest þegar kemur að framboði til forseta Íslands. Síðan 1996 hefur Ástþór boðið fram krafta sína en ekki hlotið mikinn hljómgrunn.

Ástþór mætti í viðtal til Heimis Más Péturssonar í Hörpu í morgun og var spurður að því hver væru hans helstu stefnumál. Hann vísaði til bókar sinnar Virkjum Bessastaði og sagði svörin við spurningunni að finna þar.

Heimir krafði Ástþór þrátt fyrir það svara en Ástþór vísaði áfram í bók sína og spurði Heimi á móti hvort hann væri ekki búinn að lesa bókina. Heimi minnti Ástþór á að hann væri í viðtali og hans að svara spurningum.

Þá sagðist Ástþór reiðubúinn að fara til Moskvu og fá friðarsamning við Pútín Rússlandsforseta. Hann væri með þann sannfæringarmátt sem þyrfti.


Tengdar fréttir

Sprakk úr hlátri

Jón Gnarr segist ólíklegur til að beita málskotsréttinum nema í öfgatilfellum eins og ef lægi fyrir Alþingi að leiða dauðarefsingar í lög. Þá myndi hann mótmæla því sem forseti og leggja í hendur þjóðarinnar.

Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu

Halla Hrund Logadóttir vill með framboði sínu til forseta sá þeim fræjum að framtíðin verði ekki bara hennar kynslóðar heldur komandi kynslóða. Framtíðin eigi landið að.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×