Tevez heiðraði Maradona með því að fagna alveg eins og Messi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2020 14:31 Carlos Tevez fagnar markinu sínu í gömlu Boca Juniors treyjunni hans Diego Maradona. Getty/Silvio Avila Carlos Tevez fór sömu leið og Lionel Messi þegar hann fagnaði marki í fyrsta leik sínum eftir fráfall landa þeirra Diego Armando Maradona.
Lionel Messi og Carlos Tevez þekktu báðir Maradona vel og spiluðu undir stjórn hans hjá argentínska landsliðinu. Þeir voru líka báðir að spila fyrir félag sem Maradona spilaði með á sínum tíma. Það vakti athygli þegar Lionel Messi fagnaði marki sínu í 4-0 sigri á Osasuna í spænsku deildinni að hann fór úr treyjunni og í ljós kom gömul treyja Maradona sem hann klæddist í leik með Newell's Old Boys. Carlos Tevez gerði svipaða hluti þegar hann skoraði fyrir Boca Juniors á móti Internacional í Copa Libertadores. Tevez skoraði eina mark leiksisn á 64. mínútu. Hann fagnaði með því að fara úr treyjunni eins og Messi og í ljós kom gömul Boca Juniors treyja sem Diego Armando Maradona hafði spilað í á sínum tíma. Maradona spilaði í þessari treyju árið 1981 eða áður hann fór í víking í fyrsta sinn og spilaði með Barcelona á Spáni. Carlos Tevez celebrated a goal for Boca Juniors by revealing a 1981 Boca shirt as worn by Maradona. I m very happy to have given him that happiness that surely he ll have seen from above. pic.twitter.com/9MuUZI3xcY— B/R Football (@brfootball) December 3, 2020 Tevez sagðist eftir leik hafa verið mjög ánægður með að geta glatt Maradona með þessu marki því hann væri viss um að hann væri að fylgjast með að ofan. Diego Armando Maradona lést 25. nóvember síðastliðinn aðeins tæpum mánuði eftir að hann hélt upp á sextugsafmælið sitt. Maradona stýrði argentínska landsliðinu á árinum 2008 til 2010 og þar á meðal á HM í Suður-Afríku sumarið 2010 þar sem bæði Lionel Messi (þá 22 ára) og Carlos Tevez (þá 26 ára) voru í hópnum. Maradona lék með Boca Juniors í tvígang, fyrst 1981-82 og svo aftur 1995 til 1997 sem voru síðustu árin á ferli hans. Hann lék með Newell's Old Boys eða tímabilið sem hann snéri aftur heim til Argentínu frá Evrópu.
Fótbolti Argentína Andlát Diegos Maradona Tengdar fréttir Fögnuður Messi kostar Barcelona þrjú þúsund evrur Barcelona þarf að borga þrjú þúsund evrur í sekt eftir fagn Lionel Messi um helgina. 30. nóvember 2020 21:01 Segja að einkalæknir Maradona gæti verið sekur um manndráp af gáleysi Argentíski fjölmiðillinn Clarín heldur því fram að læknir Diego Armando Maradona hafi stuðlað að láti Maradona á miðvikudaginn var. Segja þeir að læknirinn sé grunaður um manndráp af gáleysi. 29. nóvember 2020 14:20 Tárin streymdu hjá dóttur Maradonas eftir fögnuð Boca Juniors Dalma Maradona, dóttir Diegos heitins, hélt ekki aftur af tárunum þegar leikmenn Boca Juniors komu og klöppuðu til hennar eftir mark sem þeir skoruðu í gær. 30. nóvember 2020 09:32 Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira
Fögnuður Messi kostar Barcelona þrjú þúsund evrur Barcelona þarf að borga þrjú þúsund evrur í sekt eftir fagn Lionel Messi um helgina. 30. nóvember 2020 21:01
Segja að einkalæknir Maradona gæti verið sekur um manndráp af gáleysi Argentíski fjölmiðillinn Clarín heldur því fram að læknir Diego Armando Maradona hafi stuðlað að láti Maradona á miðvikudaginn var. Segja þeir að læknirinn sé grunaður um manndráp af gáleysi. 29. nóvember 2020 14:20
Tárin streymdu hjá dóttur Maradonas eftir fögnuð Boca Juniors Dalma Maradona, dóttir Diegos heitins, hélt ekki aftur af tárunum þegar leikmenn Boca Juniors komu og klöppuðu til hennar eftir mark sem þeir skoruðu í gær. 30. nóvember 2020 09:32