Nældi sér í 125 milljónir í arf og kom þeim undan Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. október 2020 20:31 Héraðsdómur Reykjaness. Vísir/Vilhelm
Kona á sjötugsaldri hefur verið dæmd í átján mánaða fangelsi, þar af eru fimmtán skilorðsbundnir, fyrir skilasvik og peningaþvætti er hún nældi sér í 125 milljóna króna arf frá móður sinni í reiðufé. Konan var dæmd fyrir að hafa komið fjármununum undan þrotabúi konunnar sem tekið var til gjaldþrotaskipta árið 2016. Konan var ákærð fyrir að hafa tvívegis komið því til leiðar, í apríl og maí 2016, að hún fékk úthlutað í reiðufé arfshlutum úr dánarbúi móður sinnar, sem konan hafði átt kröfu til frá því einkaskiptum dánarbúsins lauk í mars 2016 þar til bú hennar var tekið til gjaldþrotaskipta, jafnvirði ríflega 125 milljóna króna samanlagt, en sú háttsemi hennar var sögð í ákæru hafa miðað að því að eigur eða kröfur þrotabús hennar kæmu lánardrottnum þess ekki að gagni. Lét systur sína taka úr fjármunina í reiðufé Var konunni gefið að sök að hafa farið farið með systur sinni í útibú banka í Orlando í Flórída í apríl 2016 þar sem systir hennar tók út 210 þúsund dollara í reiðufé, andvirði 26,2 milljóna króna, miðað við gengi dollarans þann dag. Henni var einnig gefið að óskað eftir því að systir hennar tæki við 99 milljónum króna af safnreikningi dánarbús móður þeirra. Óskaði konan svo eftir því að systir hennar tæki fjármunina út í reiðufé, sem hún og gerði. Var hún einnig ákærð fyrir að hafa leynt því að hún ætti 22 þúsund dollara, um 2,7 milljónir króna, á ótilgreindum reikningi í banka í Flórída. Var hún ákærð fyrir að skjóta eignum þrotabúsins undan þannig að hún hafi komið í veg fyrir að fjárhæðin kæmi lánadrottnum þrotabúsins að gagni. Þá var hún einnig ákærð fyrir peningaþvætti fyrir að aflað sér, nýtt eða geymt ávinning þeirra brota sem talin voru upp hér að ofan. Þrotabú gerði einnig einkaréttarkröfu um að konan myndi greiða fjármunina til baka, ásamt dráttarvöxtum. Upplýsti ekki hvað varð um peningana Konan játaði sök en mótmælti einkaréttarkröfunni. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness segir að svo virðist sem að konan hafi haft einbeittan vilja til þess að koma fjármununum undan, auk þess sem að hún hafi ekki upplýst hvað hafi orðið um umrædda fjármuni, umfram það að þeir hafi verið notaðir í framfærslu hennar. Einkaréttarkröfunni var hins vegar vísað frá á þeim grundvelli að kröfuhafinn og skuldarinn væri í raun sá sami, konan sjálf og svo þrotabú hennar. Í raun væri því um kröfu í þrotabú hennar að ræða. Skiptalok hafi hins vegar ekki orðið og taldi dómurinn að þarflaust hafi verið að setja fram einkaréttarkröfu í sakamáli á hendur henni. Konan var dæmd í átján mánaða fangelsi, en þar af eru fimmtán mánuður skilorðsbundnir til þriggja ára.
Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Fleiri fréttir Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Sjá meira