Fyrrverandi NBA-leikmaður skotinn til bana

Adreian Payne í leik með Minnesota Timberwolves.
Adreian Payne í leik með Minnesota Timberwolves. Ljósmynd/NBA

Adreian Payne, fyrrverandi leikmaður Atlanta Hawks, Minnesota Timberwolves og Orlando Magic í NBA-deildinni ásamt fleiri liðum í Evrópu og Kína, var skotinn til bana á heimili sínu snemma í gærmorgun. 

Payne var valinn 15. í fyrstu umferð nýliðavals deildarinnar árið 2014 og lék með ofangreindum liðum til ársins 2018. Þá fór hann á flakk en lék síðast með liði Juventus Utena í Litháen.

Payne var einungis 31 árs gamall en einn hefur verið handtekinn og ákærður fyrir aðild að málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert