Gunnhildur Yrsa um ungu stelpurnar: Það góða við þær er að þær eru svo hugrakkar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2021 12:01 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er ánægð með ungu stelpurnar í hópnum og segist geta lært mikið af þeim. Skjámynd/S2 Sport Íslenska kvennaalandsliðið er nú skemmtileg blanda af reyndari leikmönnum og ungum framtíðarstjörnum. Liðið hefur undankeppni HM 2023 í Laugardalnum í kvöld og fyrirliðinn stefnir á sigur. „
Við erum búnar að vera með Steina í nokkra leiki og vitum hvernig við viljum spila. Við erum spenntar fyrir þessu enda búnar að bíða lengi eftir að byrja undankeppni HM,“ sagði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, í viðtali við Ríkharð Óskar Guðnason. Íslenska liðið byrjar á móti Evrópumeisturum Hollendinga á Laugardalsvellinum í kvöld. og því er verkefnið eins erfitt og það verður. „Þetta er bara fótbolti en það er ágætt að byrja á heimaleik. Þær eru búnar að vera meira saman, búnar að vera á Ólympíuleikunum og svoleiðis. Við vitum hvað vil viljum gera þannig að þetta er allt það sama,“ sagði Gunnhildur Yrsa. Klippa: Viðtal við Gunnhildi Yrsu fyrir Hollandsleik Gunnhildur er ein af reynslumiklu leikmönnum liðsins en það er líka nóg af ungum stelpum í íslenska hópnum. „Þær eru frábærar. Þótt að þær séu ungar þá eru þær samt miklir reynsluboltar. Þær eru búnar að spila lengi með sínum félagsliðum. Það góða við þær er að þær eru svo hugrakkar og þær þora. Það er gott að fá þær inn og maður getur lært heilmikið af þeim,“ sagði Gunnhildur Yrsa. Veðurspáin fyrir kvöldið er ekki alltof góð en myndi það henta íslenska liðinu betur ef að það yrði slæmt veður. „Ég held að það skipti engu máli því bæði liðin eru að spila í hvaða veðri sem verður. Eins og sást í leiknum á móti Írlandi þá hafði vindurinn alveg svolítil áhrif á leikinn sjálfan. Auðvitað vill maður spila í góðu veðri en við tökum því veðri sem kemur,“ sagði Gunnhildur Yrsa. Í hollenska liðinu er markadrottning Ólympíuleikanna, Vivianne Miedema, sem skorar nánast í hverjum einasta leik. „Þetta er frábær framherji sem var markahæst á Ólympíuleikunum. Þetta er vissulega geggjaður leikmaður en eins og ég hef sagt áður þá finnst mér gaman að spila á móti þeim bestu því þá sér maður hvar maður stendur. Það er gaman að fá að mæta svona leikmönnum,“ sagði Gunnhildur Yrsa en hver eru markmiðin fyrir leikinn í kvöld. Yrðu íslensku stelpurnar sáttar með jafntefli. „Ég vil aldrei segja að ég sé sátt með jafntefli. Við förum í alla leiki og viljum vinna og við stefnum á það. Við förum í hvern einasta leik með sjálfstraust til þess að vinna,“ sagði Gunnhildur Yrsa en það má sjá allt viðtalið hér fyrir ofan.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Mest lesið Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Enski boltinn Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Handbolti Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn Í beinni: Víkingur - KA | Ná KA-menn að stríða toppliðinu? Íslenski boltinn Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Enski boltinn Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Í beinni: Víkingur - KA | Ná KA-menn að stríða toppliðinu? Bournemouth fór illa með Brighton Í beinni: Nott. Forest - Man. City | City á siglingu Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Stendur með Salah og skilur pirring hans „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Evrópumeistarar Barcelona sneru dæminu við og eru komnar í úrslit Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum Guðrún skoraði og með fullt hús stiga á toppnum „Við þurfum að þekkja okkar vitjunartíma og taka færin“ Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn