Allt annað að fara um borð í Strætó Snorri Másson skrifar 23. október 2021 21:58 KLAPP heitir nýja greiðslukerfið í Strætó. Stöð 2/Egill Strætó er að gerbreyta um greiðslukerfi í vögnum sínum og hið nýja er sambærilegt því sem þekkist í nágrannalöndunum. Hver fer að verða síðastur að nota gömlu góðu strætómiðana, sem heyra brátt sögunni til.
Starfsmenn Strætó standa í ströngu þessa dagana við að búa alla vagna nýju kerfi sem verður tekið í notkun 16. nóvember. Það eru jafnvel erlendir sérfræðingar á staðnum, en Strætó keypti kerfið hjá norsku fyrirtæki. Það ber nafnið KLAPP. Þegar breytingarnar taka gildi verða þrjár leiðir til þess að fara um borð í Strætó. Í fyrsta lagi er það einfaldur farmiði úr pappír sem þó er hægt að fylla á með appi. Næst er það eiginlegt strætókort sem er þó ekki auðkennt með andliti eins og hin gömlu. Og í þriðja lagi er það miði í símanum sem er skannaður við innganginn. Ferlið má sjá í fréttinni hér: Við þetta bætist að í fjarlægari framtíð er stefnt að því að taka við hefðbundnum greiðslukortum. Í bili þýðir þetta að hægt og rólega heyra gömlu strætómiðarnir sögunni til - og samhliða þeim, skiptimiðarnir. Það sama gildir um gömlu strætókortin sem voru auðkennd með andliti korthafans. Þetta gerist þó ekki í hvelli heldur verður gamla kerfinu leyft að lifa með því nýja á aðlögunartímanum. Guðmundur Heiðar Helgason upplýsingafulltrúi Strætó bs. segir mikið ferli að baki.Stöð 2/Egill „Ef þú ert með kort til dæmis leyfum við þeim bara að renna út en eftir svona ár eða svo verðum við alveg búin að skipta yfir í nýja kerfið,“ segir Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó bs. Miklu erfiðara að svindla Gömlu farmiðarnir munu gilda í þrjá mánuði eftir að nýja kerfið tekur gildi - þannig að ef þú átt vænt spjald heima er best að klára það fyrir miðjan febrúar. En breytingarnar munu einfalda störf bílstjóra til muna. „Í dag er kerfið þannig að þú sýnir bara bílstjóranum fargjaldið þitt eða setur það í bauk. Það hefur því hingað til verið nokkuð auðvelt fyrir fólk að svindla ef það er að reyna það. Þannig að þessi ábyrgð, að staðfesta fargjöld með augunum er núna horfin. Nú sér hann bara grænt eða rautt ljós,“ segir Guðmundur. Umfang verkefnisins hafi komið á óvart. Útvega hafi þurft tækjabúnað, forritara og svo hafi þurft að þjálfa starfsmenn í nýju kerfi. Það er semsagt langt og flókið ferli að baki í miðjum heimsfaraldri. „Nú líður mér eins og við séum loksins komin á þann stað sem flest almenningssamgöngufyrirtæki eru í kringum okkur. Þannig að við erum bara mjög sátt við það,“ segir Guðmundur.
Strætó Tækni Samgöngur Tengdar fréttir Segir Íslendinga lata að taka Strætó Strætisvagnabílstjóri segir Íslendinga lata að nýta sér almenningssamgöngur. Flestir farþegar séu annað hvort krakkar eða útlendingar. Aðeins einn af hverjum tuttugu vissu af bíllausa deginum sem haldinn var hátíðlegur í gær. 23. september 2021 08:44 36 milljónir í þróun almenningssamgangna um land allt Sjö verkefni á sviði almenningssamgangna fá úthlutað samtals 36 milljónum króna frá samgönguráðuneyti til að styðja við þróun almenningssamgangna um land allt. 5. október 2021 21:40 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Fleiri fréttir Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Umferðarteppa vegna hópaksturs Sniglanna Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Sjá meira
Segir Íslendinga lata að taka Strætó Strætisvagnabílstjóri segir Íslendinga lata að nýta sér almenningssamgöngur. Flestir farþegar séu annað hvort krakkar eða útlendingar. Aðeins einn af hverjum tuttugu vissu af bíllausa deginum sem haldinn var hátíðlegur í gær. 23. september 2021 08:44
36 milljónir í þróun almenningssamgangna um land allt Sjö verkefni á sviði almenningssamgangna fá úthlutað samtals 36 milljónum króna frá samgönguráðuneyti til að styðja við þróun almenningssamgangna um land allt. 5. október 2021 21:40