Baldur Þórhallsson segist mjög sáttur við útkomuna í nýrri skoðanakönnun Prósents en samkvæmt henni er hann með næst mesta fylgið.
Baldur mælist með 25% fylgi i könnuninni og hefur það aðeins dalað en í liðinni viku mældist það 27,2%.
„Ég er mjög ánægður með útkomuna en þetta er bara mæling á þessum tímapunkti. Það er ennþá langt í kosningar og margt sem getur enn gerst. Kosningabaráttan er á fyrstu stigunum og það getur margt breyst ennþá,“ segir Baldur við mbl.is.
Í könnun Prósents er ekki tölfræðilega marktækur munur á honum og Höllu Hrund Logadóttur, sem mælist með mest fylgi eða 28,5%. Katrín Jakobsdóttir mælist með 18% og Jón Gnarr 16%. Spurður hvort hann líti svo á að baráttan um forsetaembættið verði á milli hans og Höllu eða hvort þetta verði slagur á milli allra þeirra fjögurra efstu segir Baldur:
„Það verður bara að koma í ljós. Við höfum séð nokkrar fylgissveiflur í þessum könnunum en fylgi mitt hefur verið nokkuð stöðugt og ég er mjög þakklátur fyrir það og eins fyrir þann meðbyr sem við finnum á þeim fundum og ferðalögum sem við höfum verið á út um landið,“ segir Baldur.
Hann segist halda áfram að kynna sýn á embættið og framundan séu kappræður í sjónvarpinu.
„Ég hlakka mjög mikið til að hitta meðframbjóðendur mína í umræðuþáttum á næstu dögum og vikum.“
Það hefur verið í nógu að snúast hjá Baldri sem og hjá flestum frambjóðendum. Baldur segist hafa verið á tveimur opnum fundum i gær, á Selfossi og í Hveragerði. Hann segir að það hafi verið á annað hundrað manns á báðum fundunum.
„Það var gaman að vera með fullt hús á báðum stöðunum og við höldum bara áfram á hringferðinni um landið,“ segir Baldur en hann verður á Reykjanesi á morgun.