Sara byrjuð að æfa hjá Lyon

Sara í þreksalnum í dag.
Sara í þreksalnum í dag. Ljósmynd/@OLfeminin

Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðsfyrirliði í knattspyrnu er byrjuð að æfa á ný í herbúðum franska stórliðsins Lyon.

Eins og fram kom fyrr í vikunni er Sara mætt á ný til franska félagsins eftir að hafa eignast dreng ásamt Árna Vilhjálmssyni í nóvember.

Hún var komin af stað í líkamsæfingum í þreksal Lyon í dag og félagið birti þessar myndir af henni á Twitter:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert