Læknar vilja viðbótargreiðslur í samræmi við álag Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 12. janúar 2022 19:02 Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í öldrunarlækningum, er formaður Læknaráðs Landspítalans. Vísir/Einar Læknar vilja breytinga á kjarasamningum og leggja til viðbótargreiðslur í samræmi við aukið álag. Mikið hafi mætt á heilbrigðisstarfsfólki í kórónuveirufaraldrinum og læknar segja eðlilegt að hluti þeirra fjármuna sem fallið hafa til samfélagsins í faraldrinum fari einnig til heilbrigðisstarsfólks.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir nauðsynlegt að stjórnvöld bregðist við. Hún óttast „spekileka“ eða flótta heilbrigðisstarfsmanna og í aðsendri grein á Vísi segir hún að stjórnvöld þurfi að koma til móts við fólkið í framlínunni. Sömu starfsmennirnir hafi verið í framlínunni frá því í upphafi faraldurs og stjórnvöld geti ekki gert ráð fyrir endalausri þolinmæði heilbrigðisstarfsmanna án nokkurrar umbunar. Flótti mannauðs óbætanlegur skaði „Það er deginum ljósara að við sem samfélag verðu að standa vörð um þennan mannauð og gæta þess að hann kikni ekki áður en yfir lýkur með tilheyrandi óbætanlegum skaða fyrir heilbrigðisþjónustu landsins til frambúðar. Það verður ekki hlaupið að því að fylla í skörðin sem þá myndast,“ segir Steinunn í greininni og bætir við að viðbótargreiðslur gætu einnig verið hvatning fyrir heilbrigðisstarfsmenn til að snúa aftur í bakvarðasveit. Steinunn lítur til nágrannalanda okkar og nefnir að tímabundnar álagsgreiðslur séu meðal annars greiddar til heilbrigðisstarfsfólks í Svíþjóð. Þar samþykkti framlínustarfsfólk að lengja vinnutíma og færa sig milli starfsstöðva gegn hækkun launa. Hún bætir við að viðbótargreiðslur þurfi ekki að einskorðast við heilbrigðiskerfið heldur einnig við þær stéttir sem almennt eru undir mestu álagi hverju sinni. „Hérlendis standa læknar Landspítalans í baráttu við vinnuveitanda sinn um að fá greiddar kjarasamningsbundnar 4 klukkustundir í yfirvinnu taki þeir að sér að manna vakt með minna en 24 klukkustunda fyrirvara,“ segir Steinunn í greininni og vísar til Kjarasamnings Læknafélags Íslands. Steinunn ræddi málið við Reykjavík síðdegis en hlusta má á viðtalið hér að neðan.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Landspítalinn Reykjavík síðdegis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Fleiri fréttir Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? Sjá meira