Handbolti

Sebastian: Eigum við ekki að leyfa Lalla að halda að hann sé enn í skuld?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lárus Helgi Ólafsson varði frábærlega í marki Fram gegn KA.
Lárus Helgi Ólafsson varði frábærlega í marki Fram gegn KA. vísir/elín björg

Sebastian Alexandersson, þjálfari Fram, sagði að sterk vörn hefði lagt grunninn að sigrinum á KA í dag.

„Fyrir leik sagði ég að ef allt færi eftir bókinni yrði lítið skorað. Þeir eru með frábæra vörn og frábæran markvörð og eru fljótir fram. Mér fannst við leysa varnarleikinn frábærlega, sérstaklega í ljósi þess að Ægir [Hrafn Jónsson] er meiddur og Þorvaldur [Tryggvason] veikur,“ sagði Sebastian við Vísi eftir leikinn í Safamýrinni.

„En aðrir stigu upp og ég er mest ánægður hvernig við leystum sjö á sex í vörninni eftir að hafa kolfallið á því prófi gegn Gróttu.“

Lárus Helgi Ólafsson var magnaður í marki Fram og varði nítján skot, eða tæplega helming þeirra skota sem hann fékk á sig. Sebastian var að vonum ánægður með frammistöðu Lárusar.

„Ég er ógeðslega ánægður með að verða fyrstir til að stöðva þetta áhlaup KA. Lalli gaf okkur nokkur atriði á mikilvægum augnablikum þegar þeir hefðu getað náð áhlaupi sem þeir hafa verið svo frægir fyrir í vetur,“ sagði Sebastian.

„Lalli er búinn að vera pínu sár út í það hvað hann var slappur gegn Gróttu og sagðist skulda tvö stig og borgaði þau svo sannarlega í dag. En eigum við nokkuð að segja honum frá því? Eigum við ekki að leyfa honum að halda að hann sé enn í skuld?“ sagði Sebastian léttur.

Þjálfarinn var nokkuð sáttur með sóknarleik Frammara í dag.

„Vörnin þeirra er frábær. Vilhelm Poulsen náði sér engan veginn á strik í dag. Í ljósi þess er þetta ótrúlega gott. Þetta var ofboðslega mikil þolinmæðisvinna. Það er erfitt að finna glufur á vörninni þeirra sem er góð. Þeir láta andstæðinginn taka skot sem henta markverðinum og þess vegna er erfitt að freistast ekki til að taka fyrsta sénsinn. En við náðum því og ég er mjög ánægður með það,“ sagði Sebastian.

„Mest af öllu er ég ánægður með að vera kominn með innbyrðis á þá. Þess vegna tók ég leikhlé undir lokin. Það skiptir máli að menn slaki ekki á. Maður veit aldrei. Af fenginni reynslu á ferlinum geta svona atriði skipt máli. En til öryggis vildi ég vera viss um að við hefðum innbyrðis á þá.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×