Kristófer Ingi kom inn á og skoraði

Kristófer Ingi Kristinsson í leik með U21 árs landsliði Íslands …
Kristófer Ingi Kristinsson í leik með U21 árs landsliði Íslands haustið 2018. Haraldur Jónasson/Hari

Kristófer Ingi Kristinsson kom inn af varamannabekk Jong PSV og skoraði í 3:1 sigri liðsins gegn MVV Maastricht í hollensku B-deildinni í dag.

Kristófer Ingi kom inn á fyrir Fode Fofana á 69. mínútu þegar staðan var 1:1. Tíu mínútum síðar kom Shurandy Sambo Jong PSV yfir í annað sinn í leiknum.

Á annarri mínútu uppbótartíma rak Kristófer Ingi svo smiðshöggið og skoraði þriðja mark liðsins.

Hann hefur verið inn og út úr liði Jong PSV á tímabilinu, þaðan sem hann er á láni frá franska liðinu Grenoble, en hefur þrátt fyrir það verið drjúgur og er nú kominn með 9 mörk í 30 deildarleikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert