Enski boltinn

Handalögmál á æfingu Arsenal

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það voru læti í kringum Luiz og Ceballos á æfingu Arsenal í síðustu viku.
Það voru læti í kringum Luiz og Ceballos á æfingu Arsenal í síðustu viku. James Williamson/Getty

Það var hiti í mönnum á æfingu Arsenal á föstudaginn var. David Luiz og Dani Ceballas var heitt í hamsi og lentu í handaáflogum.

The Athletic greinir frá þessu en þeir leikmenn sem ekki voru með landsliðum sínum spiluðu æfingaleik á föstudaginn. Skipt var í tvö lið og spilað.

Það gekk ekki betur en svo að Ceballos á að hafa tæklað varnarmanninn Luiz illa. Eftir kampinn lét Luiz miðjumanninn heyra það og endaði á því að slá hann í höfuðið.

Ceballas féll til jarðar blóðugur áður en hann steig aftur á fætur og ætlaði að hjóla í Luiz. Liðsfélagarnir voru þó fljótir til og stöðvuðu slagsmálin.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, sendi svo leikmennina báða heim en er leikmennirnir snéru til baka á æfingar Arsenal í þessari viku eiga þeir að hafa beðist afsökunar á framferði sínu.

Arsenal spilar við Leeds á útivelli á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×