Slæmt ef pólitískur ágreiningur ríkir um nauðsynlegar aðgerðir Sunna Sæmundsdóttir skrifar 7. apríl 2021 12:24 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson Mál sóttvarnarhótela er nú meðferðar í Landsrétti og von er á niðurstöðu í fyrsta lagi síðdegis í dag. Óeining er um næstu skref innan þingsins en þingmaður Viðreisnar segir skorta upplýsingar um nauðsyn aðgerðanna.
Samkvæmt upplýsingum frá Landsrétti er málið nú til meðferðar og frestur til þess að skila greinargerðum rennur út klukkan þrjú í dag. Þrír dómarar munu síðan kveða upp úrskurð og talið er að það verði í fyrsta lagi síðdegis í dag. Skyldudvöl fólks á sóttkvíarhóteli er ólögmæt og reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um hana skortir lagastoð samkvæmt úrskurði héraðsdóms sem var kærður til Landsréttar. Sóttvarnarlæknir skoraði í gær á stjórnvöld að treysta lagagrundvöll aðgerðanna. Þórólfur Guðnason segist nú bíða niðurstöðunnar og að næstu skref markist af henni. „Ef sú niðurstaða verður á sama veg þurfum við að sjá hvort við getum sniðið reglugerðir og aðgerðir að þeim lagaramma sem er fyrir hendi, ef ekki er vilji til þess að breyta honum,“ segir Þórólfur. Sóttvarnaraðgerðir á landamærunum eru til meðferðar í Landsrétti í dag.vísir/Vilhelm Hann segir ekki tímabært að gefa upp hvað gæti falist í því. „Það þarf að skoða alla möguleika innan þess lagaramma sem fyrir er en það er ríkisstjórnarinnar að taka endanlega ákvörðun. Ég er svona að hugleiða mínar næstu tillögur í því,“ segir hann. Ekki er eining á þingi um næstu skref og skiptar skoðanir eru bæði meðal þingmanna meiri- og minnihluta. Þingmenn úr röðum Sjálfstæðisflokks hafa sagst ekki munu samþykkja frumvarp þess efnis og Píratar hafa einnig sagst vilja skoða aðrar leiðir. Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar.vísir/Vilhelm Hanna Katrín Friðriksson, fulltrúi Viðreisnar í velferðarnefnd, sem fjallaði um málið í gær, segir nefndina hafa óskað eftir frekari gögnum. „Það er að segja gögnin sem varða setningu þessarar reglugerðar og þær upplýsingar sem liggja þar undir, sem sýna fram á þörfina fyrir að grípa til svona íþyngjandi aðgerða en ekki annarra aðgerða sem eru minna íþyngjandi en gætu náð sömu markmiðum,“ segir Hanna og bætir við að nú þurfi að bíða niðurstöðu Landsréttar. „Ef hann staðfestir úrskurðinn ímynda ég mér að næsta skref verði að heilbrigðisráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á lögum og þá hljóta þessar upplýsingar að vera það sem slík breyting grundvallast á,“ segir Hanna. Þórólfur segir ekki gott ef samstaða um sóttvarnaraðgerðir brestur í pólitíkinni. „Mér finnst það nú bara frekar slæmt ef það er pólitískur ágreiningur um þær sóttvarnir sem við erum að reyna grípa til. Ef það er pólitískur ágreinigur um heimildirnar til þess að grípa til þeirra sóttvarnaráðstafana sem við teljum að þurfi til þess að lágmarka áhættuna af frekara smiti,“ segir hann. „Við höfum verið að biðla til allra að sýna samstöðu, bæði á pólitíska sviðinu og eins bara til almennings. Og það er ekki gott ef það fer eitthvað að bresta í pólitíkinni,“ segir Þórólfur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira