Gjafmildi landsmanna bjargaði starfi björgunarsveitarinnar á Flateyri Birgir Olgeirsson skrifar 14. janúar 2021 18:01 Magnús Einar Magnússon, formaður björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri. Vísir/Arnar Einu ári eftir að snjóflóð féllu á Flateyri er björgunarsveitin þar á bæ komin í nýtt húsnæði sem sveitin gat keypt með fé sem almenningur og fyrirtæki í landinu gáfu eftir hamfararnir. Í nýja húsnæðinu verður starfrækt heilsugæsla sem var ekki í boði fyrir ári.
Flóðin tvö sem féllu rétt fyrir miðnætti 14. janúar í fyrra eru með allra stærstu flóðum sem fallið hafa á leiðigarða. Annað flóðið fór yfir Flateyrarhöfn og skemmdi þar báta og mannvirki. Seinna flóðið fór yfir hús í Ólafstúni. Móðir slapp þar út með tvö börn en björgunarsveitarmenn björguðu elstu dótturinni úr húsinu skömmu síðar. Björgunarsveitin hafðist við í bílskúr á Flateyri fyrir flóðin í fyrra. „Þetta gerðist mjög hratt,“ segir Magnús Einar Magnússon, formaður Björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri, um nýja húsnæðið. Þegar fregnir bárust af hamförunum í fyrra brugðust margir vel við ákalli um að styrkja björgunarsveitina á Flateyri. „Það safnaðist gífurlega vel inn á reikninginn okkar,“ segir Magnús. Í sumar bauðst björgunarsveitinni að kaupa hluta af húsnæði á Flateyri og fékk um leið kaupanda að gamla húsnæðinu. „Manni fannst sá andi vera ríkjandi í bænum að flestir vildu að við eignuðumst nýtt húsnæði,“ segir Magnús. Aðstaðan í bílskúrnum í janúar í fyrra torveldaði öllu starfi. „Nýja húsnæðið gjörbreytir öllu. Maður finnur líka á bæjarbúum að það er mikil áhugi á okkar starfsemi,“ segir Magnús. Bíða margir spenntir eftir nýliðakynningu hjá björgunarsveitinni, en ekki hefur verið hægt að halda hana vegna samkomutakmarkana. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða fékk loksins hentugt rými fyrir heilsugæslu á Flateyri í nýja húsnæðinu. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða gerði leigusamning við björgunarsveitina um rýmið. Magnús segir afar mikilvægt fyrir Flateyringa að fá þessu heilsugæsluaðstöðu. „Að þurfa ekki að leita sér þjónustu yfir vetrartímann í vondu veðri. Til dæmis að þurfa að fara með ungbarn í skoðun á Ísafjörð í óveðri til að láta vigta það, það verður hægt hérna. Þar að auki erum við erum með búnað í þessu herbergi sem vettvangsliðar, sem eru þrír í okkar sveit, fóru á námskeið sem sjúkrahúsið bauð upp á og hafa þar af leiðandi aðgang að lyfjum sem fólk gæti þurft við ýmsar aðstæður. Ef það er lokað inn á Ísafjörð geta þeir verið í símasambandi við lækni og leyst fyrsta viðbragð. Sem vantaði klárlega í janúar,“ segir Magnús. Ljóst sé að þeir fjármunir sem söfnuðust í fyrra fóru í gott starf. „Þeir sem gáfu okkur pening sjá þá í þessu húsnæði. Þetta bjargaði okkar starfsemi.“
Ísafjarðarbær Snjóflóð á Flateyri og Suðureyri Björgunarsveitir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Fleiri fréttir Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Sjá meira