Fótbolti

Bræður skoruðu á móti hvor öðrum í ítalska boltanum í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lorenzo Insigne, til vinstri, og Roberto Insigne fagna hér mörkum sínum í leiknum í gær.
Lorenzo Insigne, til vinstri, og Roberto Insigne fagna hér mörkum sínum í leiknum í gær. AP/Alessandro Garofalo

Napoli hafði betur á móti Benevento í bræðraslag í ítölsku deildinni í gær. Benevento komst í 1-0 en Napoli svaraði með tveimur mörkum og vann leikinn 2-1.

Stærsta frétt leiksins var þó eflaust að bræður skoruðu á móti hvor öðrum í honum.

Roberto Insigne kom Benevento í 1-0 á 30. mínútu leiksins en eldri bróðir hans, Lorenzo, jafnaði metin fyrir Napoli á 60. mínútu. Andrea Petagna skoraði svo sigurmarkið sjö mínútum síðar.

Lorenzo Insigne er 29 ára gamall og þremur árum eldri en Roberto. Lorenzo er fyrirliði Napoli en Roberto yfirgaf félagið í fyrra.

„Eftir leikinn þá sagði ég honum að vinstri fóturinn minn væri betri en hans,“ sagði Lorenzo Insigne í léttum tón eftir leikinn.

„Við föðmuðumst líka því þetta var spennandi dagur fyrir okkar fjölskyldu. Ég er ánægður með markið mitt og óska bróður mínum líka til hamingju með markið sitt,“ sagði Lorenzo.

„Ég er mjög hamingjusamur en biðst fyrirgefningar á því að fyrsta markið sitt í Seríu A hafi komið á móti bróður mínum. Það var góð tilfinning að spila á móti bróður mínum og Napoli, sem er liðið frá borginni minni. Við erum samt leiðir yfir því að tapa leiknum,“ sagði Roberto Insigne.

Roberto Insigne náði aðeins að spila tvo leiki með Napoli liðinu og var loksins seldur eftir að hafa farið ítrekað á láni til annarra liða.

Lorenzo Insigne hefur aftur á móti skorað 68 mörk í 273 deildarleikjum með Napoli en hann er á sínu níunda alvöru tímabili með félaginu.

Sigurinn var mikilvægur fyrir Napoli liðið sem er nú einu stigi á eftir toppliði AC Milan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×