Búið að bera kennsl á þann síðasta sem dó Samúel Karl Ólason skrifar 26. júlí 2021 23:24 Ekki er talið að fleiri hafi verið í byggingunni en áfram verður leitað í brakinu. AP/Lynne Sladky Búið er að bera kennsl á þann síðasta af 98 sem dóu þegar hluti fjölbýlishúss hrundi í bænum Surfside á Flórída þann 24. júní síðastliðinn. Estelle Hedaya var sú síðasta sem var á lista yfir þá sem hefur verið saknað frá því húsið hrundi.
Daniella Levine Cava, borgarstjóri Miami-Dade, lýsti þessu yfir í dag og er ekki talið að fleiri hafi verið í húsinu. Áfram verður þó leitað í rústunum sem hafa að mestu verið fluttar í vöruskemmu. Cava lofaði björgunarsveitar- og slökkviliðsmenn sem tóku þátt í leitinni og það starf sem þeir unnu á 33 dögum. AP fréttaveitan segir þá hafa unnið í tólf tíma vöktum og hefur eftir ráðamönnum að starfið hafi tekið á tilfinningar þeirra. Frá blaðamannafundi Cava í dag. Hluti hins tólf hæða byggingar, Champlain Towers South, hrundi um miðja nótt 24. júní. Allir nema einn dóu þegar húsið hrundi. Þessi eini dó á sjúkrahúsi. Sérfræðingar segja bygginguna mögulega hafa verið gallaða en eigendur hússins vissu af því að þörf var á umfangsmiklum og kostnaðarsömum viðgerðum en húsið var byggt árið 1981. Sjá einnig: Byggingarfulltrúi sagði húsið sem hrundi í „mjög góðu ástandi“ Hér má sjá myndband af því þegar húsið hrundi. Í grein AP segir óljóst hvað eigi að verða um lóðina. Dómari sem er með nokkur dómsmál vegna hrunsins á sinni könnu vill að lóðin verði seld. Talið er að verðið gæti farið yfir hundrað milljónir dala. Einhverjir eigendur vilja endurreisa húsið og aðrir vilja að reistur verði minnisvarði á lóðinni. Hér má hlusta á símtöl Neyðarlínunnar eftir að húsið hrundi.
Bandaríkin Húshrun í Miami Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Sjá meira