Hefur beðið sárkvalinn í viku eftir aðgerð sem ekki er hægt að framkvæma vegna manneklu Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 11. janúar 2022 12:06 Svala Lind Ægisdóttir er móðir drengsins. vísir Drengur sem handleggsbrotnaði á þriðjudaginn í síðustu viku bíður enn eftir aðgerð sem ekki hefur verið hægt að framkvæma vegna manneklu á Landspítalanum. Móðir hans segir drenginn sárkvalinn og ekkert sé hægt að gera vegna stöðunnar á spítalanum.
Á þriðjudaginn í síðustu viku lenti sonur Svölu Lindar Ægisdóttur í snjóbrettaslysi. Á bráðamóttöku kom í ljós að hann væri marghandleggsbrotinn og þyrfti á aðgerð að halda. „Hann er sendur heim með Parkódín Forte og sagt að bíða þar sem að ekki sé hægt að framkvæma aðgerð sem þarf að gera á honum, þar sem þarf að setja stálplötu í handlegginn á honum, vegna langra biðlista og undirmönnunar. Og að hann eigi bara að fara heim og bíða og það verði hringt í hann,“ sagði Svala Lind Ægisdóttir, móðir drengsins. Bíður við símann „Hann er búinn að bíða með símann í höndunum.“ Svörin sem hún fékk voru á þá leið að ekki væri hægt að framkvæma aðgerðina vegna manneklu á spítalanum. Í dag er liðin vika frá handleggsbrotinu og bíður hann enn kvalinn eftir aðgerðinni sem framkvæmd verður á fimmtudaginn, þá níu dögum eftir slysið. „Á sunnudagskvöld er hann aðframkominn af verkjum og gat varla staðið í lappirnar. Við förum þá aftur upp á bráðamóttöku og hann er skoðaður og athugað með blóðtappamyndun í hendi sem var ekki. Það reyndist erfitt að skoða hann þar sem spelkan var tekinn af og hann var svo kvalinn að það var ekki hægt að ómskoða allan handlegginn. “ Beið í sex tíma á ganginum Þar er hann sprautaður með morfíni, sendur aftur heim og sagt að koma aftur daginn eftir ef hann yrði ekki betri. „Þannig að við fórum þangað aftur í gær. Hann var kominn þangað um hálf fjögur og látinn sitja í hjólastól á ganginum í sex tíma. Þá fékk hann eina Paratabs og síðan var hann tekinn inn á stofu þar sem hann beið eftir bæklunarlækni sem athugaði með hvort það væri laust rúm fyrir hann svo það væri hægt að leggja hann inn fyrst að staðan væri orðin svona slæm.“ Hún segist ekkert geta gert og að lítið sé um upplýsingar. „Aldrei nokkurn tímann hélt ég að við myndum leita á bráðamóttöku og ekki fá þjónustu, aðstoð eða lækningu.“ Hún bað um að athugað yrði hvort hægt væri að framkvæma aðgerðina á Akureyri en hefur engin svör fengið. Landspítali á neyðarstigi Í skriflegu svari frá Landspítalanum kemur fram að forsvarsmenn spítlans tjái sig ekki um einstök mál. Vert sé að muna að spítalinn sé á neyðarstigi auk þess sem hann glími við mikla manneklu vegna Covid smitaðra starfsmanna. Við síkar aðstæður sé forgangsröðun mikilvæg en að miðað sé við að klára aðgerðir af þessu tagi innan tveggja vikna.
Landspítalinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Erlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Fleiri fréttir „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Sjá meira