Guardiola og De Bruyne framlengja Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. apríl 2021 12:30 Pep Guardiola og Kevin De Bruyne verða áfram hjá Man City næstu árin. EPA-EFE/PETER POWELL Manchester City tilkynnti nú rétt í þessu að Pep Guardiola og Kevin De Bruyne hafi skrifað undir framlengingar á samningum sínum. Pep verður hjá félaginu til 2023 en De Bruyne til 2025.
Það er nóg um að vera hjá Manchester City þessa dagana. Félagið á enn möguleika á að vinna fernuna, vann dramatískan 2-1 sigur á Borussia Dortmund í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær og gaf það nýverið út að félagið hefði tapað 126 milljónum punda á síðustu leiktíð. Það virðist ekki hafa mikil áhrif á fjárhag liðsins en í morgun tilkynnti félagið að tveir af mikilvægustu mönnum þess hefðu skrifað undir framlengingar á samningum sínum. Pep: signed to 2023KDB: signed to 2025Manchester City s mission continues pic.twitter.com/b6dNAttwiO— B/R Football (@brfootball) April 7, 2021 Pep Guardiola, þjálfari félagsins, er nú samningsbundinn til sumarsins 2023 á meðan Kevin De Bruyne skrifaði undir nýjan samning sem gildir til ársins 2025. Talið var að hinn fimmtugi Pep hefði fengið nóg á síðustu leiktíð eftir að hafa verið hjá Manchester City síðan 2016. Hann virkaði þreyttur og liðið var engan veginn að ná sömu hæðum og árin tvö á undan þegar það vann ensku úrvalsdeildina. City-liðið hefur hins vegar verið stórkostlegt á þessari leiktíð og Guardiola virðist ekki hafa neinn áhuga á að stíga til hliðar. Eftir fjögur frábær ár með Barcelona tók hann sér ársfrí áður en hann hélt til Þýskalands og tók við Bayern. Þar var hann í þrjú ár áður en hann tók við Manchester City. Klári hann samning sinn hjá City þá hefur hann eytt alls sjö árum í Manchester-borg eða jafn miklum tíma og hann gerði með Barcelona og Bayern til samans. Til að gera daginn enn betri fyrir stuðningsfólk City var einnig tilkynnt að hinn 29 ára gamli Kevin De Bruyne - einn besti leikmaður liðsins, ensku úrvalsdeildarinnar og heims – hefði skrifað undir nýjan samning sem gildir til ársins 2025. Þá verður De Bruyne orðinn 34 ára gamall og verið í herbúðum City í áratug. After penning his new deal, we sat down with the man himself! Watch the full interview with @DeBruyneKev! #ManCity | https://t.co/axa0klUGiM— Manchester City (@ManCity) April 7, 2021 Belgíski miðjumaðurinn hefur verið hreint út sagt magnaður undanfarin ár þó hann hafi glímt við erfið meiðsli um tíma. Alls hefur De Bruyne spilað 255 leiki fyrir City og skorað 65 mörk ásamt því að leggja upp önnur 105. Tímabilið 2019/2020 var hans besta á ferlinum í ensku úrvalsdeildinni en í 35 leikjum skoraði hann 13 mörk og lagði upp 20 til viðbótar.
Fótbolti Enski boltinn Tengdar fréttir Sáttur með hvernig liðið hefur brugðist við áskorunum tímabilsins Kevin De Bruyne skoraði fyrra mark Manchester City í 2-1 sigri á Borussia Dortmund í kvöld er liðin mættust í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þá var De Bruyne ein aðalástæða þess að Phil Foden skoraði sigurmark leiksins undir lok leiks. 6. apríl 2021 21:25 Foden hetja Manchester City í torsóttum sigri Manchester City lagði Borussia Dortmund 2-1 í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Hinn ungi Phil Foden reyndist hetja City en sigurmarkið kom í uppbótartíma leiksins. 6. apríl 2021 20:55 Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum Sport Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Fleiri fréttir Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ B-deildarliðið hársbreidd frá því að fara alla leið Liverpool jafnar efsta sætið að stigum Palace menn fóru mjög illa með West Ham Sjá meira
Sáttur með hvernig liðið hefur brugðist við áskorunum tímabilsins Kevin De Bruyne skoraði fyrra mark Manchester City í 2-1 sigri á Borussia Dortmund í kvöld er liðin mættust í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þá var De Bruyne ein aðalástæða þess að Phil Foden skoraði sigurmark leiksins undir lok leiks. 6. apríl 2021 21:25
Foden hetja Manchester City í torsóttum sigri Manchester City lagði Borussia Dortmund 2-1 í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Hinn ungi Phil Foden reyndist hetja City en sigurmarkið kom í uppbótartíma leiksins. 6. apríl 2021 20:55