Körfubolti

Íslandsmeistararnir fá portúgalska landsliðskonu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Raquel Laneiro í leik gegn Haukum.
Raquel Laneiro í leik gegn Haukum. FIBA

Íslandsmeistarar Njarðvíkur hafa samið við portúgölsku landsliðskonuna Raquel Laneiro um að leika með liðinu á komandi tímabili í Subway-deild kvenna í körfubolta.

Frá þessu er greint á heimasíðu Njarðvíkinga, en Laneiro er 22 ára gamall leikstjórnandi. Hún hefur verið í og við portúgalska landsliðið, sem og U23 ára lið Portúgala.

Laneiro þekkir ágætlega til í liði Njarðvíkur, en hún lék með Lavinia Joao Gomes Da Silva, sem leikur með Njarðvík. Þá hefur hún einnig leikið með Aliyuh Collier sem leikur með liðinu.

„Ég er rosalega spenntur að vinna með Raquel og tel að hún komi með fullt af hlutum að borðinu sem muni nýtast okkur vel. Hún er góður skotmaður og er vön að spila svona combo bakvarðastöðu þó við sjáum hana mest taka stöðu leikstjórnanda hjá okkur. Hún er einnig mjög dugleg varnarlega og það er mikilvægt því við munum halda áfram að leggja áherslu á að vera besta varnarlið deildarinnar!“ sagði Rúnar Ingi, þjálfari Njarðvíkur í samtali við UMFN.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×