„Brynjar, með fullri virðingu fyrir þér, sem talsmanni Samherja“ Jakob Bjarnar skrifar 3. maí 2021 11:21 Lögmennirnir Sveinn Andri og Brynjar eru á öndverðum meiði, einu sinni sem oftar, í málum sem tengjast Samherja og hvort mál yfirleitt tengist útgerðarfyrirtækinu yfirleitt. vísir/vilhelm Lögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Brynjar Níelsson alþingismaður er komnir í hár saman vegna frétta sem tengjast, eða tengjast ekki eftir atvikum, Samherja.
Frétt þess efnis að DNB hafi verið sektað um sex milljarða vegna Samherjamálsins hefur vakið mikla athygli. Sveinn Andri bendir á það í Facebook-færslu, þetta sé meðal annars fyrir slælega framfylgd laga um eftirlit með peningaþvætti, meðal annars í tengslum við viðskipti fyrirtækja í eigu Samherja við bankann. „Samherji hlýtur að svara þessu með myndbandi á YouTube,“ segir Sveinn Andri. Þingmaðurinn Brynjar er snöggur til svara og spyr: „Hvað hefur þetta með Samherja að gera?“ Í kjölfarið fylgja harkaleg orðaskipti. Sveinn spyr Brynjar hvort hann kunni ekki að lesa en Brynjar spyr á móti hvert brot Samherja sé? Vænir Brynjar um að ganga erinda Samherja Í fjörlegum umræðum er bent á að Samherji sé grunaður um að stunda peningaþvætti og DNB að tilkynna ekki millifærslur samherjafélags til félags í Dúbaí til fjármálaeftirlitsins í Noregi sem grunsamlegar millifærslur. Brynjar vill hins vegar benda Sveini á að svona málflutningur gangi ekki, Sveinn sé að afvegaleiða umræðuna. „Það er búið að fella niður rannsókn á meintu peningaþvætti í Noregi. Þetta mál FME í Noregi snýr að bankanum og starfsemi hans. Segir ekkert um möguleg brot Samherja.“ En Sveinn Andri gefur ekkert eftir og vænir Brynjar um að ganga erinda útgerðarfyrirtækisins: „Brynjar, með fullri virðingu fyrir þér, sem talsmanni Samherja, þá er ég að vísa til myndabandsþátta Samherja þar sem mikið var lagt upp úr því að DNB hefði verið hvítþveginn af ríkissaksóknara Noregs. Sá hins vegar vísaði málinu til norska fjármálaeftirlitsins. Sem nú hefur sektað bankann. Flestum ætti að giska alvarlegt að DNB sé sektaður um 6 milljarða fyrir m.a. að hafa ekki framfylgt lögum um peningaþvætti gagnvart Samherja.“ Óboðleg framsetning af lögmanni Brynjar lætur þessu ekki ósvarað. Segir þetta ekki boðlega framsetningu af lögmanni. „Rannsókn hefur farið fram á meintum skattsvikum og peningaþvætti Samherja. Hún var felld niður,“ segir Brynjar. Hann bætir því við að eftir hafi staðið rannsókn fjármálaeftirlitsins á starfsháttum bankans með tilkynningar um færslur. Bankinn viðurkenni að þar hafi pottur verið brotinn og greiði sekt. „Þetta hefur ekkert með Samherja að gera eða hugsanleg brot hans. Ég veit ekkert þetta myndband og minnist ekki þess að hafa séð það. Þú lætur kappið bera fegurðina ofurliði. Greinilega ekki verið alinn upp í Val.“
Alþingi Samherjaskjölin Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir DNB sektað um sex milljarða vegna Samherjamálsins Norska fjármálaeftirlitið hefur sektað DNB-bankann um 400 milljónir norska króna, um sex milljarða íslenskra króna, vegna brota á reglum um peningaþvætti í tengslum við Samherjamálið. 3. maí 2021 10:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira
DNB sektað um sex milljarða vegna Samherjamálsins Norska fjármálaeftirlitið hefur sektað DNB-bankann um 400 milljónir norska króna, um sex milljarða íslenskra króna, vegna brota á reglum um peningaþvætti í tengslum við Samherjamálið. 3. maí 2021 10:21