Rekja byssukúluna sem banaði fréttakonu til Ísraela Kjartan Kjartansson skrifar 21. júní 2022 10:17 Frá minningarstund um Shireen Abu Akleh í Washington-borg í Bandaríkjunum. Hún var skotin til bana þar sem hún fylgdist með aðgerð Ísraelshers á Vesturbakkanum í maí. Vísir/EPA Byssukúlan sem banaði Shireen Abu Akleh, fréttakonu al-Jazeera á Vesturbakkanum í síðasta mánuði kom frá stað þar sem ísraelskur herbílalest var stödd. Rannsókn New York Times bendir til að sérsveitarmaður hafi skotið hana til bana.
Abu Akleh lést þegar hún var skotin í höfuðið þegar hún fylgdist með aðgerðum Ísraelshers í Jenín á Vesturbakkanum 11. maí. Palestínsk yfirvöld sögðu að ísraelskur hermaður hefði myrt hana vísvitandi. Ísraelsher sagði mögulegt að hermaður hefði skotið hana fyrir misgáning eða að palestínskur byssumaður hefði skotið hana. Niðurstaða bráðabirgðarannsóknar hersins var að ekki væri hægt að segja afdráttarlaust til um uppruna kúlunna sem banaði fréttakonunni. Rannsókn New York Times á atburðarásinni þegar Abu Akleh var skotin leiddi í ljós að engir vopnaðir Palestínumenn hefðu verið nærri henni þegar hún var skotin. Það stangist á við skýringar Ísraelshers að ef hermaður skaut hana fyrir mistök þá hafi það verið vegna þess að hann ætlaði að skjóta á vopnaðan Palestínumann. Þá reyndist ísraelskur hermaður sem skaut á Abu Akleh og fleiri blaðamenn hafa skotið meira en þrefalt fleiri skotum en herinn viðurkenndi. Bandaríska blaðið fann þó engar vísbendingar um að hermaðurinn sem hleypti af hafi vitað hver Abu Akleh var eða hann hafi ætlað að skjóta hana sérstaklega. Þá liggi ekki fyrir hvort að hermaðurinn hafi séð að hún og félagar hennar væru í vestum sem voru merkt fjölmiðlum. AP-fréttastofan hafði áður sagt að rannsókn hennar renndi stoðum undir ásakanir Palestínumanna og félaga Abu Akleh að ísraelskur hermaður hefði skotið hana. Þegar Abu Akleh var borin til grafar í Austur-Jerúsalem hrintu ísraelskir óeirðarlögreglumnenn og börðu syrgjendur þannig að kisturberar misstu næstum kistu hennar 14. maí. Niðurstaða ísraelsku lögreglunnar var að lögreglumennirnir hefðu gerst sekir um brot í starfi. Yfirmönnum þeirra verður þó ekki refsað alvarlega.
Palestína Ísrael Fjölmiðlar Tengdar fréttir Lögreglumenn börðu syrgjendur í útför blaðakonu Ísraelskir lögreglumenn börðu syrgjendur með kylfum í útför blaðakonu al-Jazeera sem var skotin til bana á Vesturbakkanum á miðvikudag. Kistuberar misstu kistu hennar stuttlega vegna atgangsins. 13. maí 2022 15:44 Fréttakona Al Jazeera skotin til bana á Vesturbakkanum Fréttakona frá Al Jazeera var skotin til bana af ísraelska hernum á Vesturbakkanum í nótt. 11. maí 2022 07:25 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Lögreglumenn börðu syrgjendur í útför blaðakonu Ísraelskir lögreglumenn börðu syrgjendur með kylfum í útför blaðakonu al-Jazeera sem var skotin til bana á Vesturbakkanum á miðvikudag. Kistuberar misstu kistu hennar stuttlega vegna atgangsins. 13. maí 2022 15:44
Fréttakona Al Jazeera skotin til bana á Vesturbakkanum Fréttakona frá Al Jazeera var skotin til bana af ísraelska hernum á Vesturbakkanum í nótt. 11. maí 2022 07:25