Martins valinn maður leiksins

Miguel Martins.
Miguel Martins. AFP

Portúgalinn Miguel Martins var valinn maður leiksins í leik Íslands og Portúgal af mótshöldurum á HM í handknattleik í Egyptalandi. 

Martins lék mjög vel í síðari hálfleik í sigri Portúgal 25:23 og skoraði þá 6 mörk og þurfti einungis til þess sjö tilraunir. 

Á meðfylgjandi mynd tekur Martins eldhress við viðurkenningu að leiknum loknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert