Real vann Barcelona í framlengingu

Marco Asensio í baráttunni við Jordi Alba og Sergio Busquets …
Marco Asensio í baráttunni við Jordi Alba og Sergio Busquets í kvöld. AFP

Real Madrid leikur til úrslita í Meistarakeppni Spánar í fótbolta eftir 3:2-sigur á erkifjendunum í Barcelona í framlengdum undanúrslitaleik í Sádi-Arabíu í kvöld.

Vinícius Júnior kom Real Madrid í forystu á 25. mínútu en Luuk de Jong jafnaði á 41. mínútu og var staðan í hálfleik 1:1.

Real komst aftur yfir þegar Karim Benzema skoraði á 72. mínútu en varamaðurinn Ansi Fati jafnaði fyrir Barcelona á 83. mínútu og því var framlengt.

Federico Valverde skoraði að lokum sigurmarkið í framlengingunni á 98. mínútu og tókst Barcelona ekki að jafna í þriðja skipti.

Real mætir annaðhvort Athletic Bilbao eða Atlético Madrid í úrslitaleik.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert