Þrettán látnir eftir umferðarslys

Frá Alsír. Mynd úr safni.
Frá Alsír. Mynd úr safni. AFP

Þrettán manns eru látnir og átta slösuðust í alvarlegu bílslysi í Alsír, þegar rúta skall á flutningabíl. Þeir slösuðu hafa verið fluttir á sjúkrahús.

Slysið átti sér í Naama-héraði, í um 650 kílómetra fjarlægð frá Algeirsborg, höfuðborg Alsír.

Umferðarslys vegna hraðaksturs eru algeng í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert