Vistaskipti Birgis óvenjuleg en trufla Katrínu ekki Kolbeinn Tumi Daðason og Snorri Másson skrifa 11. október 2021 11:51 Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, verður næsti forsætisráðherra takist flokkunum að ná saman. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segir óvenjulegt að þingmaður yfirgefi flokk sinn jafn skömmu eftir kosningar og raun ber vitni hjá Birgi Þórarinssyni, fyrrverandi Miðflokksmanni og nú þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Formennirnir leita fyrirmynda á Norðurlöndunum varðandi röðun málaflokka í sín ráðuneyti.
Katrín mætti til fundar með Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins og Sigurði Inga Jóhannssyni formanni Framsóknar í Ráðherrabústaðnum klukkan ellefu í morgun. Hún segir þau áfram ætla að hittast þrjú og gefa sér tíma til að fara yfir einstaka málaflokka. Sigurður Ingi sagði fyrir fundinn að meðal annars væri tekist á um orku- og loftslagsmál. Hann hafi hug á því að skipa nýjan innanviðaráðherra eða ráðherra skipulagsmála. „Við erum auðvitað að horfa á þetta heilstætt þegar við erum að ræða þetta við þrjú. Við erum að horfa á mögulegan tilflutning verkefna á milli ráðuneyta, erum ekki búin að lenda því endanlega. Við lendum því varla fyrr en undir lok þessara viðræðna,“ segir Katrín. Þau horfi meðal annars til Norðurlandanna varðandi það hvernig málaflokkum sé raðað þar niður á einstök ráðuneyti. Katrín var spurð hvort vistaskipti Birgis Þórarinssonar úr Miðflokknum í Sjálfstæðisflokkinn hefði áhrif á stjórnarmyndunarviðræður. Í ljósi þess að styrkur Sjálfstæðisflokksins hefði aukist enn frekar með nýjum manni. Trufli ekki viðræðurnar „Það myndi ég ekki halda. Eins og ég hef sagt áður nálgumst við þetta verkefni sem jafningjar þótt prósentuhlutföll flokkanna séu mismunandi. Sé ekki að þetta eigi að hafa nein árhif á þær.“ Hún segist hafa séð þingmenn hætta áður í flokkum og byrja í öðrum, nokkuð greiðlega. „Það truflar mig í sjálfu sér ekkert. Auðvitað er það svolítið óvenjulegt að þingmaður hætti í sínum flokki svo skömmu eftir kosningar eins og raun ber vitni.“ Skoðanir Birgis eru umdeildar, en hann er meðal annars efasemdamaður þegar kemur að loftslagsmálum auk þess sem hann hefur talað gegn fóstureyðingum. Áfram ósammála mörgum skoðunum Sjálfstæðismanna „Birgir er ekki að óska eftir því að ganga í þingflokk Vinstri grænna. Ég hefði ekki átt von á því að hann gerði það. Þegar þrír flokkar ræða saman um stjórnarmyndum er afstaða tekin til málefnasamningsins á vettvangi flokksstofnana og þingflokka þeirra flokka. Hann kemur væntanlega sínum skoðunum á framfæri þar,“ segir Katrín. Spyrja yrði formann Sjálfstæðisflokksins að því hvort Birgir verði ráðherra í nýrri ríkisstjórn. „Við vitum að það eru ýmsar skoðanir í þingflokki Sjálfstæðismanna sem ég er alls ekki sammála. Þannig hefur það verið og ég vænti þess að það verði þannig áfram.“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í morgun að í viðræðunum væri miðað við að Katrín yrði áfram forsætisráðherra.
Alþingiskosningar 2021 Vinstri græn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Tengdar fréttir Áskoranir í viðræðum sem taki tíma Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir áskoranir í stjórnarmyndunarviðræðum hans, Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna og Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Viðræðurnar muni taka minnst einhverja daga til viðbótar. 11. október 2021 11:40 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira
Áskoranir í viðræðum sem taki tíma Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir áskoranir í stjórnarmyndunarviðræðum hans, Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna og Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Viðræðurnar muni taka minnst einhverja daga til viðbótar. 11. október 2021 11:40