Martin getur komust í lokaúrslitin í kvöld: „Góðan daginn, Hermannsson“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2021 14:31 Martin Hermannsson í leik með Valencia liðinu í vetur. Getty/Mike Kireev Valencia og Real Madrid spila í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í lokaúrslitunum á móti Barcelona eða Lenovo Tenerife en staðan er 1-1 í báðum einvígum. Oddaleikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport 2 og íslenskt körfuboltaáhugafólk fær því flottan körfuboltaleik á kvöldi þegar Domino's deildin er í fríi. Leikurinn fer fram á heimavelli Real Madrid og hefst klukkan 19.50 að íslenskum tíma. Real Madrid vann fyrsta leikinn í einvíginu með ellefu stigum, 81-70, og deildarmeistararnir voru þá búnir að vinna þrjá fyrstu leiki sína í úrslitakeppninni. Fyrsta tapið þeirra kom í síðasta leik. Valencia liðið var ekki tilbúið að fara í sumarfrí og jafnaði metin í einvíginu með sannfærandi átján stiga sigri í leik tvö, 85-67. Þetta er annar oddaleikur Valencia í þessari úrslitakeppni og liðið er að fara spila sinn sjötta leik á ellefu dögum. Bon dia, Fonteta!Góðan daginn, @hermannsson15!1 -1 ... ¡y mañana el tercero! @RMBaloncesto P3 #PlayoffLigaEndesa Jueves, 22h @vamos @CocaCola_es#EActíVate pic.twitter.com/Kj6Vkk9p58— Valencia Basket Club (@valenciabasket) June 9, 2021 Íslenski landsliðsbakvörðurinn Martin Hermannsson var mjög góður í öðrum leiknum á móti Real Madrid þar sem hann var með 9 stig og 5 stoðsendingar á aðeins sautján mínútum. Valencia vann með fimmtán stigum þegar Martin var inn á vellinum. Hann fékk líka eitt „Góðan daginn, Hermannsson“ á samfélagsmiðlum Valencia. Martin var með 11 stig á 16 mínútum í fyrsta leiknun. Hann er því búinn að spila 33 mínútur í einvíginu og á þeim er íslenski landsliðsbakvörðurinn með 20 stig og 6 stoðsendingar sem er frábær tölfræði. Valencia er +19 með hann inn á vellinum en -12 með hann á bekknum. Lið Real Madrid og Valencia þekkjst mjög vel enda hafa þau þegar mæst sjö sinnum á tímabilinu, í deildinni, í úrslitakeppninni og í Euroleage. Valencia hefur unnið fjóra af þessum sjö leikjum og sigur í kvöld myndi þýða að deildarmeistararnir væru úr leik. Martin @hermannsson15, ¡especialista sobre la bocina!#LigaEndesa pic.twitter.com/KM1RM2Qy9E— Liga Endesa (@ACBCOM) June 10, 2021 Leikir Real Madrid og Valencia í vetur: Euroleague 8. október: Valencia vann með 16 stigum (93-77) Deildin 1. nóvember: Real Madrid vann með 8 stigum (86-78) Konungsbikarinn 11. febrúar: Real Madrid vann með 11 stigum (85-74) Euroleague 19. febrúar: Valencia vann með 11 stigum (89-78) Deildin 9. maí: Valencia vann með 10 stigum (79-69) Úrslitakeppnin 6. júní: Real Madrid vann með 11 stigum (81-70) Úrslitakeppnin 8. júní: Valencia vann með 18 stigum (85-67) Spænski körfuboltinn Mest lesið Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Íslenski boltinn Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Handbolti Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Fótbolti LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Körfubolti Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Stjarnan - Keflavík | Tekst Garðbæingum að jafna? „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni „Breytir einvíginu ansi mikið“ „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Lakers lætur Ham líklega fara Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Sjá meira
Oddaleikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport 2 og íslenskt körfuboltaáhugafólk fær því flottan körfuboltaleik á kvöldi þegar Domino's deildin er í fríi. Leikurinn fer fram á heimavelli Real Madrid og hefst klukkan 19.50 að íslenskum tíma. Real Madrid vann fyrsta leikinn í einvíginu með ellefu stigum, 81-70, og deildarmeistararnir voru þá búnir að vinna þrjá fyrstu leiki sína í úrslitakeppninni. Fyrsta tapið þeirra kom í síðasta leik. Valencia liðið var ekki tilbúið að fara í sumarfrí og jafnaði metin í einvíginu með sannfærandi átján stiga sigri í leik tvö, 85-67. Þetta er annar oddaleikur Valencia í þessari úrslitakeppni og liðið er að fara spila sinn sjötta leik á ellefu dögum. Bon dia, Fonteta!Góðan daginn, @hermannsson15!1 -1 ... ¡y mañana el tercero! @RMBaloncesto P3 #PlayoffLigaEndesa Jueves, 22h @vamos @CocaCola_es#EActíVate pic.twitter.com/Kj6Vkk9p58— Valencia Basket Club (@valenciabasket) June 9, 2021 Íslenski landsliðsbakvörðurinn Martin Hermannsson var mjög góður í öðrum leiknum á móti Real Madrid þar sem hann var með 9 stig og 5 stoðsendingar á aðeins sautján mínútum. Valencia vann með fimmtán stigum þegar Martin var inn á vellinum. Hann fékk líka eitt „Góðan daginn, Hermannsson“ á samfélagsmiðlum Valencia. Martin var með 11 stig á 16 mínútum í fyrsta leiknun. Hann er því búinn að spila 33 mínútur í einvíginu og á þeim er íslenski landsliðsbakvörðurinn með 20 stig og 6 stoðsendingar sem er frábær tölfræði. Valencia er +19 með hann inn á vellinum en -12 með hann á bekknum. Lið Real Madrid og Valencia þekkjst mjög vel enda hafa þau þegar mæst sjö sinnum á tímabilinu, í deildinni, í úrslitakeppninni og í Euroleage. Valencia hefur unnið fjóra af þessum sjö leikjum og sigur í kvöld myndi þýða að deildarmeistararnir væru úr leik. Martin @hermannsson15, ¡especialista sobre la bocina!#LigaEndesa pic.twitter.com/KM1RM2Qy9E— Liga Endesa (@ACBCOM) June 10, 2021 Leikir Real Madrid og Valencia í vetur: Euroleague 8. október: Valencia vann með 16 stigum (93-77) Deildin 1. nóvember: Real Madrid vann með 8 stigum (86-78) Konungsbikarinn 11. febrúar: Real Madrid vann með 11 stigum (85-74) Euroleague 19. febrúar: Valencia vann með 11 stigum (89-78) Deildin 9. maí: Valencia vann með 10 stigum (79-69) Úrslitakeppnin 6. júní: Real Madrid vann með 11 stigum (81-70) Úrslitakeppnin 8. júní: Valencia vann með 18 stigum (85-67)
Leikir Real Madrid og Valencia í vetur: Euroleague 8. október: Valencia vann með 16 stigum (93-77) Deildin 1. nóvember: Real Madrid vann með 8 stigum (86-78) Konungsbikarinn 11. febrúar: Real Madrid vann með 11 stigum (85-74) Euroleague 19. febrúar: Valencia vann með 11 stigum (89-78) Deildin 9. maí: Valencia vann með 10 stigum (79-69) Úrslitakeppnin 6. júní: Real Madrid vann með 11 stigum (81-70) Úrslitakeppnin 8. júní: Valencia vann með 18 stigum (85-67)
Spænski körfuboltinn Mest lesið Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Íslenski boltinn Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Handbolti Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Fótbolti LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Körfubolti Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Stjarnan - Keflavík | Tekst Garðbæingum að jafna? „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni „Breytir einvíginu ansi mikið“ „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Lakers lætur Ham líklega fara Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Sjá meira