Messi bauð öllu Barcelona liðinu í mat heim til sín Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2021 11:31 Lionel Messi fagnar öðru marka sinna á móti Valencia með félögum sínum í Barcelona liðinu. AP/Alberto Saiz Barcelona og Atletico Madrid mætast um næstu helgi og Börsungar komast upp fyrir Atletico með sigri á Nývangi.
Það er mikilvæg vika framundan fyrir Barcelona því liðið mætir Atletico Madrid um komandi helgi í einum af úrslitaleikjunum um meistaratitilinn í spænska fótboltanum í ár. Lionel Messi bryjaði undirbúninginn á því að bjóða öllum heim til sín í gær. Barcelona tapaði óvænt á móti Granada á fimmtudaginn í síðustu viku en bætti fyrir það með því að vinna 3-2 sigur á Valencia um helgina. Lionel Messi var að sjálfsögðu með tvö mörk í leiknum og er þar með kominn með 28 mörk í deildinni á tímabilinu. Leo Messi has invited the entire squad at his home for dinner. The Argentine's intention is to celebrate victory at Mestalla and prepare for the clash against Atlético Madrid. Via .@sport pic.twitter.com/oE1lZ0zx6G— This Is Blaugrana (@ThisIsBlaugrana) May 3, 2021 Messi hefur farið fyrir endurkomu Barcelona sem hefur minnkað þrettán stiga forskot Atletico Madrid niður í aðeins tvö stig. Liðið verður að vinna Atletico á laugardaginn ætli liðið sér titilinn. Messi ákvað að reyna að þjappa hópnum saman eftir æfingu og bauð öllu Barcelona liðinu í mat heim til sín eftir æfingu í gær en þetta kemur fram á ESPN. Messi býr í Castelldefels sem er borg við sjóinn rétt fyrir utan Barcelona. Messi bauð ekki aðeins leikmönnunum sjálfum heldur máttu þeir koma með konurnar sínar líka. Markmiðið var að efla mannskapinn og auka samheldnina með því að hittast á nýjum stað. Það verður fróðlegt að sjá hverju þetta óvenjulega matarboð skilar. Messi invited every team member for the dinner except Matheus Fernandes. Reason is yet unknown. pic.twitter.com/L1AHM8a1lE— ESPN FC (@ESPN_FC_) May 3, 2021 Það er enginn leikur hjá Barcelona í þessari viku eins og í vikunni á undan og þjálfarinn Ronald Koeman gaf leikmönnum frí frá æfingu í dag. Næst æfing er ekki fyrr en annað kvöld. Barcelona kemst stigi fram úr Atletico Madrid með sigri á laugardaginn en þar með er ekki öll sagan sögð. Barcelona er eins og er með jafnmörg stig og Real Madrid. Real hafði aftur á móti betur í innbyrðis leikjum liðanna á leiktíðinni og verður því alltaf ofar endi liðin jöfn. Real Madrid þarf því líka að tapa stigum ætli Barcelona að vinna spænska meistaratitilinn í ár.
Spænski boltinn Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Handbolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Fótbolti Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Fótbolti Fleiri fréttir UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Sjá meira