Ungir Sjálfstæðismenn gagnrýna Svandísi og kalla eftir afléttingum hið fyrsta Atli Ísleifsson skrifar 24. nóvember 2021 13:11 Svandís Svavarsdóttir hefur verið heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins. Vísir/Vilhelm Samband ungra Sjálstæðismanna gagnrýnir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og hefur kallað eftir því að takmörkunum stjórnvalda vegna faraldurs kórónuveirunnar verði aflétt hið fyrsta.
Þetta kemur fram í ályktun stjórnar SUS. Þar segir að „frelsisskerðandi aðgerðir [verði] ekki réttlætanlegar til lengdar“ og á sama tíma kalli sambandið eftir heilbrigðisráðherra sem sé „tilbúinn að veita borgurum frelsi sitt að nýju.“ Er Svandís gagnrýnd fyrir að hafa ekki aðlagað Landspítalann að ástandinu með því að úthýsa verkefnum og þess í stað lagt áherslu á að færa verkefni frá einkaaðilum og til spítalans með tilheyrandi aukna álagi. Reiknað er með að Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn muni á næstu dögum tilkynna um endurnýjað samstarf flokkanna í ríkisstjórn og nýjan stjórnarsáttmála. Í ályktuninni frá SUS segir að takmarkanir vegna Covid-19 hafi verið hertar 12. nóvember, þrátt fyrir að 99 prósent smitaðra þurfi ekki á spítalainnlögn að halda. „Rök sem sett eru fyrir enn frekari takmörkunum eru þau að mikilvægt sé að vernda heilbrigðiskerfið. Heilbrigðisráðherra hefur haft tvö ár til að aðlaga spítalann að ástandinu. Í stað þess að létta álagi af spítalanum, t.a.m. með því að úthýsa verkefnum sem einkaaðilar geta séð um, þá hefur ráðherrann lagt áherslu á að færa verkefni frá einkaaðilum yfir á Landspítala með auknu álagi,“ segir í ályktuninni. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, 2. varaformaður SUS; Lísbet Sigurðardóttir, formaður SUS; og Steinar Ingi Kolbeins, varaformaður.SUS Neyðarúrræði Ennfremur segir að mjög ríkar kröfur séu, og eigi að vera, gerðar til beitingu frelsisskerðandi aðgerða. „Að mati SUS uppfyllir rekstrarvandi ríkissjúkrahúsins ekki þær kröfur. Ráðast þarf að rót vandans og undirbúa sjúkrahúsið fyrir smitbylgjur, sem eru ekki á förum og eru orðnar partur af nýjum raunveruleika. Félagsleg og efnahagsleg áhrif af slíkum takmörkunum eru þess eðlis að þau ættu að vera algjört neyðarúrræði. Hlutfall bólusettra 12 ára og eldri er 89% og í upphafi faraldursins var talað um að hjarðónæmi myndi nást á þeim tímapunkti. Komið hefur á daginn að yfirlýsingar sóttvarna yfirvalda þess efnis að hjarðónæmi náist með ákveðnum fjölda skammta af bóluefni eru byggðar á vísindalegum getgátum og því ljóst að þær nægja ekki sem langtímaáætlun stjórnvalda um hvernig „lifa megi með veirunni“. Stjórnvöld verða að setja fram langtímaáætlanir vegna veirunnar svo að einstaklingar geti hagað sínum lifnaðarháttum eftir því og að atvinnurekendur, og sérstaklega þau sem hafa atvinnu sína af viðburðahaldi, búi ekki við þann ótta að þeim gæti orðið skylt að loka eða haga sér með einum eða öðrum hætti með skömmum fyrirvara,“ segir í ályktun SUS.
Sjálfstæðisflokkurinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Samkomubann á Íslandi Heilbrigðismál Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira