Lífið

„Ég er að fara deyja ef ég held þessu áfram“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Brynjar Steinn er þekktur sem Binni Glee og er samfélagsmiðlastjarna. 
Brynjar Steinn er þekktur sem Binni Glee og er samfélagsmiðlastjarna. 

Sjónvarps- og samfélagsmiðlastjarnan Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktu sem Binni Glee, greindi frá því á dögunum að hann glímir við matarfíkn á lokastigi og lotugræðgi.

Hann hefur alla tíð átt í óheilbrigðu sambandi við mat og var farinn að borða þar til hann ældi sem þróaðist yfir í lotugræðgi. Binni vill opna umræðuna um matarfíkn og hættunni sem fylgir sjúkdómnum. Hann vill ná tökum á heilsunni, að ná að anda betur og líða vel í eigin líkama. Eva Laufey ræddi við Binna í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær.

„Þú hættir ekki að hugsa um mat allan sólarhringinn og bara borðar yfir þig og þetta er bara sjúkdómur. Þú hættir bara ekki að hugsa um mat. Þú ert alltaf að pæla í því hvað þú ætlar að borða um kvöldið og hvenær sem er. Svo borðar maður yfir sig og svo líður manni svo illa eftir á.“

Binni segist alltaf hafa verið í ofþyngd alveg frá því að hann var yngri.

„Ég hef alltaf sagt við fólk að ég væri með matarfíkn án þess að vera greindur með það. Ég fór á einn fund í fyrra til að reyna fá hjálp og fór á einn Zoom fund og mér fannst þetta svo vandræðalegt að ég meikaði þetta ekki. Ég reyndi að fara á ketó aftur á dögunum og reyndi það í þrjá daga en gafst upp, fór út í búð og keypti ógeðslega mikið af mat. Borðaði allt á klukkutíma. Eftir það lagðist ég upp í rúm og hugsaði ég, ég er að fara deyja ef ég held þessu áfram.“

Sjokk að vera greindur með lotugræðgi

Binni leitaði sér hjálpar núna í janúar.

„Ég er þannig manneskja að ég þarf alltaf að skrifa það sem ég ætla mér og því tísti ég og það fór viral. Ég get þá ekki bakkað út. Ég hafði samband við MFM-miðstöðina og var greindur með matarfíkn á lokastigi og líka búlimíu. Ég var meira í sjokki yfir því að greinast með búlimíu. Það byrjaði í október í fyrra þegar ég borðaði allt of mikið og svo allt í einu æli ég upp matnum á pítsakassann. Svo heldur þetta bara áfram að gerast. Mér leið alveg vel eftir þetta. Það var gott að geta fengið sér mikið að borða og æla svo. Ég fór stundum á veitingastaði og fór síðan inn á klósett og ældi. Ég er að fara á sextán vikna námskeið þar sem ég fæ aðstoð. Þetta er bara heilinn og það þarf bara að laga heilann,“ segir Binni.

Binni segist gera sér grein fyrir því að þetta sé hættulegt.

„Ég veit alveg að það er hægt að deyja úr búlimíu. Mamma mín fékk alveg sjokk þegar ég sagði henni frá þessu. Sumir vinir mínir vissu alveg að ég væri að æla og allir eru ánægðir að ég sé að leita mér hjálpar núna.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.


Tengdar fréttir

„Þetta er sjúkdómur sem er að drepa mig“

Raunveruleikastjarnan Brynjar Steinn, betur þekktur sem Binni Glee, hefur gefið út yfirlýsingu um það að hann ætli að leita sér aðstoðar við matarfíkn sem sé að drepa hann. Matarfíknin hefur ágerst hjá honum síðustu mánuði og núna finnst honum vera kominn tími til þess að fá aðstoð.

Binni Glee fékk taugaáfall á Akureyri

Það var heldur betur mikið um að vera í raunveruleikaþættinum Æði á Stöð 2 í gærkvöldi en gengið skellti sér í ferð í heimabæ þeirra flestra, Akureyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×