Lukkan að snúast hjá Skagamönnum? Valur Páll Eiríksson skrifar 19. júlí 2021 21:00 Jóhannes Karl Guðjónsson er þjálfari ÍA. Vísir/Bára Dröfn ÍA vann mikilvægan og óvæntan 2-1 sigur á Íslandsmeisturum Vals í Pepsi Max-deild karla í fótbolta á laugardag. Farið var yfir fórnfýsi leikmanna Skagaliðsins í varnarleik sínum í Pepsi Max stúkunni, og velti Baldur Sigurðsson því upp hvort lukkan væri að snúast hjá Skagamönnum. ÍA hafði aðeins unnið einn leik í deildinni fyrir þann gegn Val, en sá kom 21. maí gegn HK. Því var um að ræða þeirra fyrsta sigur í tæpa tvo mánuði en þeir höfðu oftar en einu sinni misst sigurstöður niður í jafntefli eða tap á þeim tíma. „Þeir hafa verið að brotna, Keflavíkurleikurinn sem maður man eftir, þar sem þeir komust 2-1 yfir, en það varð 2-2 nánast strax. Víkingsleikurinn þar sem þeir voru með þá í 0-0 en missa það undir lokin. Þetta hefur verið að brotna, en þeir vörðust alveg með kjafti og klóm í þessum leik og ætluðu ekki að gefa þetta frá sér,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson um Skagamenn eftir sigur þeirra á laugardag. Klippa: ÍA vörn „Þetta var bara virkilega vel gert hjá þeim og það gefur þeim sjálfstraust að komast í 1-0, og hvað þá 2-0. Maður varð smá hræddur þegar Valur síðan skorar, um hvað myndi gerast. Valur náttúrulega fær færið í lokin hjá Patrick [Pedersen] sem að hefði getað gert nákvæmlega það sem þú varst að tala um að setja leikinn í eitt stig, sem hefði gert rosalega lítið fyrir Skagann,“ sagði sérfræðingurinn Baldur Sigurðsson um ÍA og bætti við: „En það er bara guð og lukka, sem hjálpar oft liðum, og ef það er einmitt að snúast, maður skapar sína eigin lukku, og ef það snýst fyrir Skagann þá gæti verið bjart fram undan hjá þeim.“ Færi Patricks Pedersen, sem Baldur nefndi, fékk hann á 94. mínútu þegar hann setti boltann í stöngina eftir að boltinn féll fyrir fætur hans á markteig. Um klúður þess danska segir Baldur: „Þetta er skemmtilega gert hjá honum, en hann á að klára þetta. Hornið er opið, en ég veit ekki hvort hann er byrjaður að hugsa um markmanninn, verður dálítið hræddur og vill klára þetta sem fyrst til að lenda ekki í tæklingunni frá Árna [markverði ÍA]. En hann á bara að klára þetta.“ Varnarleik ÍA auk færis Pedersens og umræðu þeirra Kjartans og Baldurs má sjá að ofan. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Pepsi Max-deild karla ÍA Valur Pepsi Max stúkan Mest lesið Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Enski boltinn „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Handbolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ Sport Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir Körfubolti „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ Körfubolti Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Körfubolti Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki Fótbolti Fleiri fréttir „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir „Ég vil vera þarna uppi að berjast um flest mörk“ „Held að Katla mín fyrirgefi mér þetta alveg“ Uppgjörið og viðtöl: Þór/KA - Þróttur | Sandra María algjörlega óstöðvandi Uppgjör: Valur - Víkingur 7-2 | Sýning hjá Amöndu og Nadía skoraði í stórsigri Valskvenna Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Skúrkurinn endaði sem hetjan FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjá meira
ÍA hafði aðeins unnið einn leik í deildinni fyrir þann gegn Val, en sá kom 21. maí gegn HK. Því var um að ræða þeirra fyrsta sigur í tæpa tvo mánuði en þeir höfðu oftar en einu sinni misst sigurstöður niður í jafntefli eða tap á þeim tíma. „Þeir hafa verið að brotna, Keflavíkurleikurinn sem maður man eftir, þar sem þeir komust 2-1 yfir, en það varð 2-2 nánast strax. Víkingsleikurinn þar sem þeir voru með þá í 0-0 en missa það undir lokin. Þetta hefur verið að brotna, en þeir vörðust alveg með kjafti og klóm í þessum leik og ætluðu ekki að gefa þetta frá sér,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson um Skagamenn eftir sigur þeirra á laugardag. Klippa: ÍA vörn „Þetta var bara virkilega vel gert hjá þeim og það gefur þeim sjálfstraust að komast í 1-0, og hvað þá 2-0. Maður varð smá hræddur þegar Valur síðan skorar, um hvað myndi gerast. Valur náttúrulega fær færið í lokin hjá Patrick [Pedersen] sem að hefði getað gert nákvæmlega það sem þú varst að tala um að setja leikinn í eitt stig, sem hefði gert rosalega lítið fyrir Skagann,“ sagði sérfræðingurinn Baldur Sigurðsson um ÍA og bætti við: „En það er bara guð og lukka, sem hjálpar oft liðum, og ef það er einmitt að snúast, maður skapar sína eigin lukku, og ef það snýst fyrir Skagann þá gæti verið bjart fram undan hjá þeim.“ Færi Patricks Pedersen, sem Baldur nefndi, fékk hann á 94. mínútu þegar hann setti boltann í stöngina eftir að boltinn féll fyrir fætur hans á markteig. Um klúður þess danska segir Baldur: „Þetta er skemmtilega gert hjá honum, en hann á að klára þetta. Hornið er opið, en ég veit ekki hvort hann er byrjaður að hugsa um markmanninn, verður dálítið hræddur og vill klára þetta sem fyrst til að lenda ekki í tæklingunni frá Árna [markverði ÍA]. En hann á bara að klára þetta.“ Varnarleik ÍA auk færis Pedersens og umræðu þeirra Kjartans og Baldurs má sjá að ofan. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max-deild karla ÍA Valur Pepsi Max stúkan Mest lesið Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Enski boltinn „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Handbolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ Sport Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir Körfubolti „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ Körfubolti Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Körfubolti Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki Fótbolti Fleiri fréttir „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir „Ég vil vera þarna uppi að berjast um flest mörk“ „Held að Katla mín fyrirgefi mér þetta alveg“ Uppgjörið og viðtöl: Þór/KA - Þróttur | Sandra María algjörlega óstöðvandi Uppgjör: Valur - Víkingur 7-2 | Sýning hjá Amöndu og Nadía skoraði í stórsigri Valskvenna Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Skúrkurinn endaði sem hetjan FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti