Birta mynd sem á að skýra nýju reglurnar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 26. janúar 2022 18:50 Flæðirit almannavarna. Almannavarnir Almannavarnir hafa birt flæðirit í von um að það útskýri betur nýjar reglur um sóttkví og smitgát sem tóku gildi á miðnætti.
Frá og með miðnætti tóku reglur um smitgát og sóttkví breytingum á þann hátt að einstaklingur sem verður útsett fyrir smitum utan heimilis ekki sæta sóttkví heldur fara í smitgát. Börn og unglingar verða algjörlega undanþegin reglum um smitgát. Til glöggvunar eru reglurnar eftirfarandi: Sóttkví verður fyrir þá sem eru útsettir á heimili. Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna. Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur. Þríbólusettir (smit telur sem ein bólusetning) á heimili fara þó í smitgát í stað sóttkvíar, sbr. að neðan, sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi. Smitgát verður fyrir þá sem eru útsettir utan heimilis. Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga. Smitgát þarf að viðhafa í fimm daga og ekki þarf sýnatöku til að losna, sbr. þó þríbólusetta sem eru útsettir á heimili. Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili. Eitthvað hefur borið á því að hinar nýju reglur séu ekki einfaldar og hafa netverjar til að mynda grínast með þær, eins og sjá má hér að neðan. ATH! Þríbólusettir útsettir fyrir smiti á heimili tvíbólusettra skulu nú viðhafa smitgát nema sá tvíbólusetti sé í smitgát, þá gildir sú smitgát en ALLTAF taka þríbólusettir niðurstöðu úr PCR-prófi með sér í milliriðil EÐA fram að næsta fulla tungli en þá gilda innbyrðissýnatökur— Dagur Hjartarson (@DagurHjartarson) January 25, 2022 Þeir sem eru þríbólusettir og smitast heima af einstaklingi sem er tvíbólusettur og hefur fengið Covid áður og smitaðist af konu sem smitaðist utandyra, ásamt tveimur karlmönnum og/eða hamstri, sem eru ein-, tví- eða þríbólusettir eiga að fara í smitkví eða spila handbolta.— Þorsteinn Guðmunds (@ThorsteinnGud) January 25, 2022 Almannavarnir sendu meðfylgjandi mynd á fjölmiðla í kvöld með skilaboðum um að um sé að ræða myndræna framsetningu á reglum um sóttkví og smitgát, sem geti mögulega gagnast. Flæðirit almannavarna.Almannavarnir
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Almannavarnir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Þolinmæði saminganefnda á þrotum Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira