Gæti yfirgefið Bayern á frjálsri sölu

Jérome Boateng í leik með þýsku meisturunum.
Jérome Boateng í leik með þýsku meisturunum. AFP

Þýski landsliðsmaðurinn Jérome Boateng verður samningslaus hjá þýsku meisturunum Bayern München eftir þetta tímabil og segist hann vera íhuga nýja áskorun.

Boateng, sem hefur spilað 76 landsleiki fyrir Þýskaland, hefur spilað með Bayern frá árinu 2011 og þá varð hann heimsmeistari með Þýskalandi 2014. Hann er orðinn 32 ára gamall.

„Ég er manneskja sem elskar að kynnast nýju fólki, menningu og borgum. Ég er opinn fyrir nýrri áskorun en líka 100% einbeittur á að hjálpa Bayern að vinna,“ sagði Boateng í viðtali við Goal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert