Tommi lögga gaf Héraðsskjalasafni Árnesinga 60 þúsund ljósmyndir Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 14. maí 2022 13:03 Mynd frá Tómasi, Svifnökkvi á siglingu á Ölfusá 30. ágúst 1967. Svifnökkvinn sigldi frá Vestmannaeyjum og á Selfoss. Einkasafn Héraðsskjalasafni Árnesinga hefur borist höfðingleg gjöf því Tómas Jónsson, fyrrverandi lögreglumaður á Selfossi var að gefa safninu 60 þúsund ljósmyndir, sem hann hefur tekið í gegnum árin. Tómas hefur eytt síðustu ellefu árum í sjálfboðavinnu á safninu við að skrásetja myndirnar.
Það eru margir, sem eiga mikið af ljósmyndum í fórum sínum, ekki síst eldra fólk, sem tók myndir á pappír og slædds. Yngra fólk í dag tekur meira og minna allar myndir á símana sína og það er allt á stafrænu formi. Það var hátíðleg stund í Héraðsskjalasafni Árnesinga á Selfossi í vikunni þegar Tommi lögga, eins og hann er alltaf kallaður en heitir fullu nafni Tómas Jónsson færði safninu 60 þúsund ljósmyndir, sem hann hefur tekið, að gjöf til varðveislu um ókomin ár. Tómast starfaði til fjölda ára í lögreglunni í Árnessýslu. Tómas að vinna í myndasafni sínu í aðstöðunni, sem hann hefur hjá Héraðsskjalasafni Árnesinga á Selfossi.Magnús Hlynur Hreiðarsson Kjartan Björnsson, sem er formaður stjórnar Héraðsskjalasafnsins afhenti Tómasi viðurkenninguna og veglegan blómvönd. „Það er auðvitað ekki sjálfgefið að nokkur maður leggi það á sig að vinna án endurgjalds í ellefu ár með slíkri trúmennsku eins og Tómas hefur gert hér hjá okkur. Þetta er bara algjörlega ómetanlegt fyrir okkar samfélag að eiga slíkt fólk því við gætum þetta ekki öðruvísi,“ segir Kjartan. Frá afhendingu viðurkenningarinnar til Tomma löggu. Þorsteinn Tryggvi (t.v.) og Kjartan standa sitthvoru megin við hann og svo er starfsfólk safnsins líka á myndinni.Aðsend Héraðsskjalasafnið er með sérstakt ljósmyndaverkefni í gangi undir heitinu myndasetur.is Þorsteinn Tryggvi Másson, forstöðumaður safnsins segir safn Tomma lögga ómetanlegt fyrir safnið. „Þetta eru um það bil fimm til sex stöðugildi á safninu á ári, sem liggja í þessari vinnu hjá Tómasi og sú vinna er eiginlega alveg jafn mikilvæg. Núna getum við nafngreint fólk og við getum staðsett þessa hluti og það skiptir gríðarlega miklu máli,“ segir Þorsteinn Tryggvi. Tómas Jónsson starfaði í tæp tvö ár sem lögreglumaður í Aðalstöðvum Sameinuðu Þjóðanna í New York, þ.e. frá 1969-1971. Hér er hann í einkennisbúningnum.Einkasafn Tómas hefur unnið samfleytt í 11 ár á safninu hálfan vinnudag til að skrásetja safnið sitt. „Ef ég væri ekki búin að hafa þessa fínu aðstöðu á safninu og þetta yndislega starfsfólk safnsins þá væri ég örugglega ekki svona vel á mig komin. Ef ég hefði verið að horfa á naflan á mér allan þennan tíma væri ég ábyggilega komin í kör,“ segir Tómas hlægjandi. Tómas hefur tekið mikið af mannamyndum í gegnum árin. Hér eru þær Anna Ásgeirsdóttir, Berta Sigurðardóttir, Kristín Þórarinsdóttir og Harpa Harðardóttir, árið 1967.Einkasafn
Árborg Ljósmyndun Menning Söfn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Þetta er vitað um árásarmanninn Erlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira