Unnu sigur í fyrsta leiknum án Hardens Sindri Sverrisson skrifar 15. janúar 2021 07:31 Christian Wood var stigahæstur hjá Houston Rockets í sigrinum í nótt. Getty/Ronald Cortes James Harden lék ekki með Houston Rockets í nótt vegna yfirvofandi vistaskipta hans til Brooklyn Nets en án hans vann Houston sinn fjórða leik á tímabilinu. Harden hefur verið aðalmaðurinn í Houston um árabil og stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar síðustu þrjú tímabil. Nú er komið að öðrum að láta ljós sitt skína hjá liðinu og Houston vann 109-105 sigur gegn San Antonio Spurs. Christian Wood var atkvæðamestur hjá Houston með 27 stig og 15 fráköst. Sterling Brown, sem kom inn í byrjunarliðið í stað Hardens, skoraði 23 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar, og Jae‘Sean Tate var einnig öflugur með 13 stig, 10 stoðsendingar og fimm fráköst. 27 PTS, 15 REB from @Chriswood_5 helps the @HoustonRockets prevail against SAS! #Rockets pic.twitter.com/9IZjNXhE59— NBA (@NBA) January 15, 2021 Harden hálfpartinn kvaddi Houston í viðtali eftir tvo tapleiki í röð gegn LA Lakers á þriðjudaginn, með þeim orðum að liðið væri einfaldlega ekki nógu gott og ekki væri hægt að laga það. Samherjar hans nýttu fyrsta tækifæri til að sýna að eitthvað væri þó í liðið spunnið, en Houston er samt næstneðst í vesturdeildinni með 4 sigra og 6 töp. Jokic með þrennu og Denver upp að hlið Golden State Nikola Jokic skoraði 18 af 23 stigum sínum í seinni hálfleik þegar Denver Nuggets unnu tíu stiga sigur á Golden State Warriors, 114-104. Liðin eru þar með jöfn að stigum ásamt San Antonio um miðja vesturdeildina með 50% sigurhlutfall eftir 12 leiki. Jokic skoraði ekki bara 23 stig heldur tók 14 fráköst og gaf 10 stoðsendingar, og náði þar með sinni 46. þrennu á ferlinum. Stephen Curry setti niður 14 af 23 skotum sínum og skoraði 35 stig. Hann er nú 15 þriggja stiga körfum frá því að jafna við Reggie Miller í 2. sæti yfir flesta þrista í sögu deildarinnar. Miller setti niður 2.560 þrista á sínum ferli. Ray Allen er efstur með 2.973 þrista. Úrslit næturinnar: Philadelphia 125 – 108 Miami Toronto 111 – 108 Charlotte San Antonio 105 – 109 Houston Denver 114 – 104 Golden State Portland 87 – 111 Indiana NBA Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Fótbolti Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Enski boltinn „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn „Höfum engu að tapa núna“ Fótbolti „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ Fótbolti Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Kolli í titilbardaga sem gæti valdið vatnaskilum Sport Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið Körfubolti Mari meyr eftir sigurinn Sport Fleiri fréttir Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Þjálfari Luka og Kyrie framlengir „BLE-bræður eru brjálaðir!“ Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins „Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Bara þrjú af tíu líklegustu NBA-liðunum komust í aðra umferð Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Tryggvi Snær kom inn af bekknum í tapi gegn botnliðinu „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Sjá meira
Harden hefur verið aðalmaðurinn í Houston um árabil og stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar síðustu þrjú tímabil. Nú er komið að öðrum að láta ljós sitt skína hjá liðinu og Houston vann 109-105 sigur gegn San Antonio Spurs. Christian Wood var atkvæðamestur hjá Houston með 27 stig og 15 fráköst. Sterling Brown, sem kom inn í byrjunarliðið í stað Hardens, skoraði 23 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar, og Jae‘Sean Tate var einnig öflugur með 13 stig, 10 stoðsendingar og fimm fráköst. 27 PTS, 15 REB from @Chriswood_5 helps the @HoustonRockets prevail against SAS! #Rockets pic.twitter.com/9IZjNXhE59— NBA (@NBA) January 15, 2021 Harden hálfpartinn kvaddi Houston í viðtali eftir tvo tapleiki í röð gegn LA Lakers á þriðjudaginn, með þeim orðum að liðið væri einfaldlega ekki nógu gott og ekki væri hægt að laga það. Samherjar hans nýttu fyrsta tækifæri til að sýna að eitthvað væri þó í liðið spunnið, en Houston er samt næstneðst í vesturdeildinni með 4 sigra og 6 töp. Jokic með þrennu og Denver upp að hlið Golden State Nikola Jokic skoraði 18 af 23 stigum sínum í seinni hálfleik þegar Denver Nuggets unnu tíu stiga sigur á Golden State Warriors, 114-104. Liðin eru þar með jöfn að stigum ásamt San Antonio um miðja vesturdeildina með 50% sigurhlutfall eftir 12 leiki. Jokic skoraði ekki bara 23 stig heldur tók 14 fráköst og gaf 10 stoðsendingar, og náði þar með sinni 46. þrennu á ferlinum. Stephen Curry setti niður 14 af 23 skotum sínum og skoraði 35 stig. Hann er nú 15 þriggja stiga körfum frá því að jafna við Reggie Miller í 2. sæti yfir flesta þrista í sögu deildarinnar. Miller setti niður 2.560 þrista á sínum ferli. Ray Allen er efstur með 2.973 þrista. Úrslit næturinnar: Philadelphia 125 – 108 Miami Toronto 111 – 108 Charlotte San Antonio 105 – 109 Houston Denver 114 – 104 Golden State Portland 87 – 111 Indiana
Philadelphia 125 – 108 Miami Toronto 111 – 108 Charlotte San Antonio 105 – 109 Houston Denver 114 – 104 Golden State Portland 87 – 111 Indiana
NBA Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Fótbolti Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Enski boltinn „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn „Höfum engu að tapa núna“ Fótbolti „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ Fótbolti Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Kolli í titilbardaga sem gæti valdið vatnaskilum Sport Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið Körfubolti Mari meyr eftir sigurinn Sport Fleiri fréttir Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Þjálfari Luka og Kyrie framlengir „BLE-bræður eru brjálaðir!“ Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins „Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Bara þrjú af tíu líklegustu NBA-liðunum komust í aðra umferð Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Tryggvi Snær kom inn af bekknum í tapi gegn botnliðinu „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Sjá meira