Tala látinna í Ekvador fer hækkandi: Hlupu skelfingu lostin út á götu Máni Snær Þorláksson skrifar 19. mars 2023 00:15 Jarðskjálfti að stærð 6,8 skók Ekvador í dag. Að minnsta kosti þrettán létu lífið í skjálftanum. AP/Jorge Sanchez Tala látinna vegna jarðskjálftans sem skók Ekvador og norðurhluta Perú í dag fer hækkandi. Þrettán hafa látið lífið og fleiri einstaklingar eru særðir. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum.
Samkvæmt AP eru staðfest andlát vegna skjálftans nú þrettán talsins. Tólf létu lífið í Ekvador og einn í Perú. Sú sem lést í Perú er fjögurra ára gömul stelpa sem lést vegna höfuðáverka sem hún fékk er heimili hennar hrundi. Stelpan átti heima á Tumbes svæðinu en svæðið eru við landamæri Perú og Ekvador. Þá hefur verið greint frá því að einn einstaklingur hafi látist í Ekvador er veggur hrundi á bíl hans. Einnig hefur komið fram að þrjú létust er turn sem hélt uppi öryggismyndavélum féll á þau. Vottar aðstandendum samúð sína Guillermo Lasso, forseti Ekvador, vottar aðstandendum þeirra sem létu lífið samúð sína í yfirlýsingu sem hann birti á samfélagsmiðlinum Twitter fyrr í kvöld. Lasso segir í yfirlýsingunni að yfirvöld séu að vinna hörðum höndum að því að laga skemmdirnar sem urðu vegna skjálftans, nóg sé til af fjármunum til að fara strax í þá vinnu. Las familias ecuatorianas no están solas. El Gobierno Nacional está siempre para brindarles todo su apoyo y contingente. pic.twitter.com/0clIE7Wjbf— Guillermo Lasso (@LassoGuillermo) March 18, 2023 Ljóst er að fjölmörg mannvirki skemmdust í skjálftanum. Samkvæmt Reuters urðu skemmdir meðal annars á heimilum fólks, skólum og sjúkrahúsum. Einhverjar skemmdir urðu á Santa Rosa flugvellinum í borginni Machala en ekki þurfti að stöðva starfsemi þar. Hlupu út á götu Íbúar í Ekvador sem fjölmiðlar hafa rætt við í kjölfar skjálftans lýsa mikilli skelfingu sem greip um sig er skjálftinn reið yfir. „Við hlupum öll út á götu, við vorum mjög hrædd,“ er haft eftir Ernesto Alvarado, íbúa á eyjunni Puná, í frétt Reuters en upptök jarðskjálftans voru í grennd við eyjuna. Magaly Escandon, sem rekur fyrirtæki í ekvadorsku borginni Cuenca, segir svipaða sögu í samtali við AFP: „Ég hljóp út á götu því ég sá fólk sem var skelfingu lostið koma sér út úr bílnum sínum og hlaupa.“
Ekvador Eldgos og jarðhræringar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Fleiri fréttir Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu Sjá meira