Leiðtogi kynlífsþrælkunarhópsins dæmdur í 120 ára fangelsi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. október 2020 23:45 Keith Raniere og verjendur hans líkt og teiknari AP sá þá fyrir sér í dómsal. AP/Elizabeth Williams
Keith Raniere, maðurinn sem sakaður var um að hafa verið leiðtogi sjálfshjálparhóps sem hneppti konur í kynlífsþrælkun hefur verið dæmdur í 120 ára fangelsi. Kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu á síðasta ári að sakfella ætti Raniere af öllum ákæruliðum í málinu en hann var ákærður fyrir fjárglæfrar, kynlífsþrælkun og ýmsa aðra glæpi. Raniere var leiðtogi hóps sem kallaðist NXIVM en svo virðist sem að konur hafi verið sérstaklega fengnar í sérstakan undirhóp NXIVM til þess að stunda kynlíf með Raniere. Þrátt fyrir að meira en ár sé liðið frá sakfellingunni hafði dómarinn í málinu ekki ákveðið hversu lengi Raniere ætti að dúsa í fangelsi. Niðurstaðan barst í dag, 120 ára fangelsi, sem þýðir að Raniere mun sitja í fangelsi til æviloka. Aðrir meðlimir hópsins sem ákærðir voru í tengslum við starfsemi hans höfðu játað brot sín, þar á meðal Hollywood-leikkonan Allison Mack, sem best er þekkt fyrir leik sinn í þáttunum Smallville. Hún játaði á síðasta ári að hafa aðstoðað Raniere að finna konur og halda þeim í kynlífsþrælkun. Málið sneri einkum að hóp innan NXIVM sem kallaðist DOS og átti að vera einhvers konar kvenfélag innan NXIVM. Hópurinn átti eingöngu að vera skipaður konum og var tilgangur hans að bæta líf þeirra og vera valdeflandi. Þvert á móti virðist hópurinn eingöngu hafa þjónað þeim tilgangi að svala kynferðislegum þörfum Raniere. Raniere neitaði sök í málinu en bar ekki vitni í því. Raunar kölluðu verjendur hans engin vitni til að tala máli hans á meðan á réttarhöldunum stóð. Byggðist vörnin einkum á því að samræði Raniere og kvennanna hafi verið með samþykki beggja aðila.
Bandaríkin Tengdar fréttir Þrælar, yfirboðarar, brennimerking og hundaólar hluti af daglegu lífi innan kynlífsþrælkunarhópsins Réttarhöld standa nú yfir Keith Raniere, leiðtoga kynlífs-sértrúarsafnaðarins Nxivm í Bandaríkjunum. Meðal þeirra sem borið hafa vitni gegn honum er kona sem kom fram undir nafninu Sylvie. Í réttarsal lýsti hún daglegu lífi innnan safnaðarins. 9. maí 2019 12:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Fleiri fréttir Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Sjá meira
Þrælar, yfirboðarar, brennimerking og hundaólar hluti af daglegu lífi innan kynlífsþrælkunarhópsins Réttarhöld standa nú yfir Keith Raniere, leiðtoga kynlífs-sértrúarsafnaðarins Nxivm í Bandaríkjunum. Meðal þeirra sem borið hafa vitni gegn honum er kona sem kom fram undir nafninu Sylvie. Í réttarsal lýsti hún daglegu lífi innnan safnaðarins. 9. maí 2019 12:00