Vilja vindorkugarða við nær alla strandlengju Bandaríkjanna Kjartan Kjartansson skrifar 14. október 2021 10:39 Vindtúrbínur sem standa utan við Rhode-eyju á austurströndinni voru þær fyrstu sem voru reistar undan ströndum Bandaríkjanna. Gangi áætlun Biden verða slíkar túrbínur utan við nær alla strönd landsins á næstu áratugum. AP/Michael Dwyer Ríkisstjórn Joes Biden vill láta reisa vindorkuver við nærri alla strandlengju Bandaríkjanna á næstu árum. Stefnt er að því að vindorkuframleiðendur geti byrjað að sækja um leyfi til að reisa vindtúrbínur fyrir utan ströndina fyrir árið 2025.
Deb Haaland, innanríkisráðherra, kynnti áformin á ráðstefnu vindorkuiðnaðarins í Boston í gær. Sagði hún að ráðuneytið ætlaði að hefjast handa við að velja, afmarka og vonandi leigja hafsvæði á forræði alríkisstjórnarinnar við Mexíkóflóa, Maine-flóa, undan ströndum Mið-Atlantshafsríkjanna, Norður- og Suður-Karólínu, Kaliforníu og Oregon, að því er segir í frétt New York Times. Aðeins búið að veita leyfi fyrir einum stórum vindorkugarði, utan við Vínekru Mörtu í Massachusett. Alríkisstjórnin hefur til skoðunar umsóknir um vindorkuverkefni á nokkrum stöðum til viðbótar á austurströndinni. Við Kyrrahafsströndina hafa tvö svæði við miðja og norðanverða Kaliforníu verið opnuð vindorkuverum. Áætlunin er sögð stærsta aðgerð Bandaríkjastjórnar til þess að efla uppbyggingu vindorku fyrr og síðar. Markmiðið er að vindorkugarðar framleiði þrjátíu gígavött af rafmagni sem dugi til að knýja um tíu milljónir heimila fyrir árið 2030. Breska ríkisútvarpið BBC segir að viðbúið sé að áformin mæti mótstöðu víða, meðal annars frá íbúum strand- og fiskibæja. Til þess að vindorkugarðarnir verði að veruleika þurfa yfirvöld í einstökum ríkjum og sýslum að leggja blessun sína yfir þá. Þá þurfa þeir að komast í gegnum umhverfismat en sum samtök náttúruverndarsinna óttast að vindtúrbúnir utan við ströndina gætu drepið fjölda sjófugla. Bandaríkin og önnur ríki heims þurfa þó að auka verulega framleiðslu á raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum eins og vindi svo hægt verði að hætta hratt notkun á jarðefnaeldsneyti sem veldur hnattrænni hlýnun. Í nýjustu vísindaskýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) fyrr á þessu ári var varað við því að metnaðarfyllra markmið um Parísarsamkomulagsins um að hlýnun verði takmörkuð við 1,5°C gæti brostið strax á næsta áratug jafnvel þó að dregið verði hratt úr losun strax á næstu árum.
Orkumál Loftslagsmál Bandaríkin Joe Biden Vindorka Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Fleiri fréttir Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Sjá meira